Flott byrjun í blíðunni við Geirlandsá

Tveir í mælingu í einu, mynd frá SVFK

Eins og búast mátti við fór veiðin vel af stað í Geirlandsá í morgun. Áin í fínu vatni, veðrið með eindæmum gott þó svolítið kalt hafi verið í morgunsárið. En hlutirnir fóru fljótlega að gerast.

Arnar Óskarsson með hnallþéttan geldbirting úr Geirlandsá í morgun.
Geirlandsáin hefur verið firna góð síðustu vertíðir og stefnir í það sama nú. Mikið af fiski, helst að veðrið hafi verið of gott! Sem er nú yfirleitt ekki raunin þann 1.apríl. En árnefndin opnaði að venju og landaði tólf birtingum á fyrstu vakt. Vænir fiskar upp til hópa og athygli vöktu nokkrir hnallþykkir geldfiskar.