Stór dagur á morgun, enginn 1.apríl með það!

Sjóbirtingur, Varmá
Glæsilegur sjóbirtingur úr Varmá. Mynd -gg.

Á morgun hefst stangaveiðivertíðin 2022 og verður að segja að elstu menn muna varla eftir jafn hagstæðum aðstæðum í byrjun apríl. Þó að einhver hret dynji yfir þá er vorið klárlega komið.

Fjölmörg svæði opna á morgun, nefna má Litluá, Brunná, Húseyjarkvísl, Grímsá, Leirá, Leirvogsá, Varmá, Ásgarður í Sogi, Ytri Rangá, eystrii bakki Hólsár, Eldvatn, Tungufljót, Vatnamót, Tungulækur, Fossálar, Geirlandsá, minnivallalækur og eflaust erum við að gleyma einhverju.

Næstu daga og vikur munu FB síður fyllast af myndum af stórfiskum og VoV mun sem fyrr gera sitt besta að flytja spennandi og skemmtilegar fréttir af bökkum vatnanna.