Hrútan hefur að jafnaði opnað 1.júlí síðustu árin, enda þótt vera sein til og svokölluð síðsumarsá. Að þessu sinni opnaði í áin í dag, 22.júní og það var strax líf.
Þröstur Elliðason leigutaki Hrútafjarðarár sagði í færsu með mynd: „Sá fyrsti úr Hrútu, tekin í Háeyrarhyl og veiðimaðurinn er Nils Folmer Jörgensen. Tók fluguna Autumn Hooker og var 74 cm. Áin að sjatna eftir flóð og vonandi bætast fleirri við fljótlega enda aðstæður góðar.“
Þetta segir í sjálfu sér ekkert um hvort að opnunin verði lífleg eða slök, en alltaf gaman þegar það uppgötvast að fyrir er fiskur og þá gott að hafa snilling eins og Nils til að fara fyrir hollinu. Sjáið bara hvað gerðist í Elliðaánum þegar menn töldu tíma Ásgeirs Heiðars kominn. Enginn lax. Samt var kominn lax og síðustu daga hafa veiðst laxar upp um alla á, m.a. í Símastreng, Hrauni, Kistum, Hundasteinum og Árbæjarhyl.










