Eftir arfa slaka byrjun í Blöndu kom smá skot síðasta sólarhringinn og tengist líklega stórstreyminu sem var í gær, 11.júní. Vonandi er þetta vísbending um batnandi tíð með blóm í haga.

Fjórir þrælkunnugir veiðigarpar voru að veiðum, Eric Koberling, staðarhaldari við Blöndu, Bjarki Már Jóhannsson veiðileiðsögumaður, Jóhann Davíð Snorrason veiðileyfasalai hjá Kolskeggi og Jakob Hinriksson. Fjórir fallegir laxar á milli 76-86 cm var landað úr Blöndu undanfarna 24 tíma, allir grálúsugir. Þremur þeirra var landað í morgun.
Þetta er skot og þetta er líf, en þetta er ekki mikið og enn má segja að allt sé í stíl við væntingar og menn bíði með óþreyju eftir því hvað skilar sér af smálaxi.










