Hofsá hefur farið „betur af stað en við þorðum að vona“, eins og Ari Þórðarson orðaði það í dag en hann opnaði ána í gærmorgun ásamt félögum sínum. Aðeins var veitt með fjórum stöngum og voru tíu komnir á land á hadegi í dag.


Sex var landað í gær og fjórum í morgun. Fleiri bættust við í kvöld.Ari sagði lax á öllum svæðum og vatnið í anni með eindæmum hagstætt miðað við opnun en oftar en ekki væri áin vatnsmikil og köld á þesum tíma sumarsins. Allir voru laxarnir vænir og vel haldnir, 69 tl 87 cm. Ari sagði þessa opnun gefa tilefni til bjartsýni.










