Nú er laxveiðitíminn að sigla inn í sinn mest spennandi hluta og það væri ekki úr vegi að kíkja á laxaflugur sem margir hafa kynnst, en mögulega enn fleiri alls ekki. Þetta er skáskorni Skugginn hans Sigga Haugs, Hrúta eftir Svein Þór Arnarson og Erna eftir Nils Folmer. Hér segja þeir frá tilurð þeirra, sérkenna og veiðisögur fjúka.

Skáskorinn Skuggi, Sigurður Héðinn
Skáskorinn Skuggi eftir Sigga Haug.

                           Skáskorni Skugginn hans Sigga

Byrjun á Ská skorna Skugganum eftir Sigurð Héðinn, eða Sigga Haug. Þetta er ekki alveg ný fluga og hefur verið gífurlega öflug síðustu þrjú sumrin eða svo. Á markaðinn eru að koma nýjar útfærslur af flugunni sem spennandi verður að fylgjast með og prófa. Siggi Haugur hefur orðið:  “Ská Skorinn Skuggi hagar sér öðruvísi í vatninu og það er það sem gerir hann svona öflugan. Á dauðarekinu  kafar hann aðeins undir yfirborðinu, það er,  hann fer inn í strauminn. Þegar hann er strippaður þà poppar hann upp og niður sem gerir hann mjóan og breiðan, það er þegar togað er í hann þá kemur hann upp í yfirborðið sem mjótt strik , þegar hann stoppar milli strippa þá breiðir hann úr sér. Þetta er meðal annars það sem gerir hann svona öflugan. Núna er að koma á markaðinn keila sem er eins í laginu eins og ská skurðurinn á plastinu og hefur sú fluga verið prófuð með fanta góðum árangri.”

Margir eiga og reyna þessa flugu og hafa bara flott af henni að segja. Síðast við opnun Þverár í Borgarfirði sagði Ingólfur Ásgeirsson, sem veiddi fyrsta daginn með Andrési Eyjólfssyni að þeir félagar hefðu landað öllum sínum fimm löxum á Ská skorinn Skugga og einnig misst laxa og fengið tökur. Vart hefði þurft að Skipta um flugu allan túrinn!

Hrútan, Sveinn Þór
Hrútan eftir Svein Þór Arnarson.

                                 Hrútan hans Sveins Þórs

Sveinn Þór Arnarson,, sá öflugi hnýtari hefur búið til magnaða laxaflugu sem byggð er á túpuræksni sem hann lenti einhverju sinni fyrir margt löngu í stórveiði í Hrútafjarðará. Flugan heitir því Hrúta. Sveinn segir frá: “Þessi túpa er hnýtt eftir eldgamalli gáru túpu sem ég mokveiddi á í Hútafjarðará og það ítrekað. Hér skal ég segja frá tveimur sögum af henni. Fyrir 14 árum ca var ég með Sigurbrandi og fleirum í Hrútu og áin nánast vatnslaus, gúmmískór hefðu ábbygilega dugað. Það var alveg steindautt og þeir fáu laxar sem sáust snéru öfugt í ánni til að reyna að fá eitthvað súrefni Svo var ákveðið að eina vaktina að Brandur færi við annan mann upp í Réttarstreng, efsta staðinn í ánni og ég og Lalli Kalli ljósmyndari færum niður í Maríubakka næst neðsta stað í ánni og ég var náttúrlega með gáruna undir. Svo fór að falla að og þá fékk ég fisk og annan og þá þriðja og Lalli Kalli varð ekki var en hringdi í hina og svo komu þeir og þeir stóðu þrír í kringum mig og köstuðu ótt og títt en urðu ekki varir. En ég hélt áfram að setja í fisk og mig minnir að ég hafi fengið 8 laxa þarna meðan þeir urðu ekki einu sinni varir. Svo var það einu sinni sem ég og Brandur byrjuðum aðra veiðiferð í Réttarstreng og hann kastaði rauðum Frances og varð ekki var. Svo kastaði ég og var lax á með það sama. Svo prófaði hann aftur og varð ekki var og vildi fara, en ég heimtaði að fá að kasta aftur og tók annan lax með það sama. Þá reyndi Brandur í þriðja skiptið en varð ekki var og þá vildi hann enn fara, sem við og gerðum en ég veit eftirá að fleiri laxa hefði ég fengið ef ég hefði haldið áfram. En málið er nú það að í þessum tveimur dæmum sem ég nefni að það voru tvö útjólublá efni í gárunni og það er eina skýringin á því að ég fékk bara lax þegar hinir urðu ekki svo mikið sem varir!”

Erna, Nils Folmer
Bláeygð Erna eftir Nils Folmer.

                                Erna úr smiðju Nils Folmers

Nils Fölmer er flestum stangeviðimönnum kunnur og hefur hann hnýtt margar gjöfular flugur. Margar þeirra eiga rætur að rekja til dálæti Danans á Laxá í Aðaldal, þar á meðal er hin lúsveiðna Erna. Nils segir frá:

“Þessi fluga er ekki ný, en hefur sýnt styrk sinn í allnokkrum ám á Íslandi. Uppruunalega var hún hnýtt til að nota í Laxá í Aðaldal þar sem hún hefur verið í hópi öflugustu flugna þegar kemur að stærstu löxunum, þeim meterslöngu og þaðan af meira. Það þarf ekki annað en spyrja Lillu Rowcliffe, Hugo og marga hinna sem veiða reglulega á Nesveiðunum í Laxá. Sjálfur hef ég landað sex löxum um og yfir meterinn síðan að ég fór að nota hana sumarið 2013. Upprunalega útgáfan var með grænu flossi á búk og Angel Dubbing fest með grænum vír til að gefa aukna þyngd. Þá kom svartur vængur með nettum englahárum á milli efri og neðri vængja. Skeggið nett og gult. Eitt af skemmtilegustu smáatriðum flugunnar er blái hausinn sem er þekkt kennileyti margra minna flugna. Til að ná rétta bláa llitnum þarf hvítan þráð og svo er hér leyndarmálið: Blái liturinn er naglalakk sem ég keypti í H&M.

Flugan var upprunalega hnýtt sem klassísk hárfluga og síðan kom Erna í Irish Shrimp stíl með langt skott, en mest nota ég þó fyrri útgáfuna, þá klassísku. Með Irish Shrimp útgáfunni finnst mér flugan vera orðin of long fyrir minn smekk o ger þá farina ð nálgast Sunray Shadow að umfangi. Ég er miklu meira fyrir styttri flugur.

Með tímanum hafa komið fleiri útgáfur af Ernu. Ein mjög vinsæl sem seld er í nokkrum af betri veiðibúðum Reykjavíkur, og hnýtt hjá Atlantic Flies í Thailandi, er Erna Spey. Það sem bæst hefur við í þeirri útfærslu er grænsvart skegg og blár skógarhani. Ég hef líka sett blaá skógarhanann á upprunalegu fluguna og hefur það gefist mjög vel. Bláeygð Erna er undurfögur.

Í sumar er ég svo kominn með gula útfærslu sem ég hnýtti að áeggjan Valgarðs Ragnarssonar. Eina breytingin er sú að vængurinn er gulur í stað svarts. Valli, sem er afar reyndur og snjall veiðimaður, telur að þetta sé flugan se muni rúlla upp haustveiðinni og leggur hann sérstaklega áherslu á að flugan sé hnýtt á öngla númer 14.

Þá get ég nefnt afbrigði þar sem búkurinn er einvörðungu hulinn grænu tinsel og örlitlu af royal blue íkornahárum smyglað í undirvænginn. Sú útfærsla er auðveldari í hnýtingu og lítur veiðilega út. Þá hafa örfáir veiðimenn fengið Ernu í nokkurskonar Snældu útfærslu. Erna er ein af eftirlætisflugunum mínum og það er löngu ljóst að það er ekki aðeins ég sem þykir flugan falleg, laxinum þykir það líka!”