Við greindum frá því um helgina að upprennandi sé nýtt Þjórsárævintýri þar sem Iceland Outfitters hafa tekið á leigu Þjórsá fyrir landi Þjórsártúns, sem sagt m.a. Urriðafoss frá austurlandinu. Fyrsta sumarið við Urriðafoss að vestan var ævintýri líkast og hér gera Stefán og Harpa hjá IO upp sumarið.

Þegar horft er á landið í heild var laxavertíðin ekki annað en í besta falli þokkaleg. En það voru ljósir punktar hér og þar, ekki hvað síst við Urriðafoss. Þar kom það öllum að óvörum þegar Stefán Sigurðsson hjá IO tók fyrstu köstin, með óformlega rannsóknaropnun í lok mai og var búinn að setja í stórlax eftir örfá köst. Síðan má segja að mokveiði hafi verið, í það minnsta út júlímánuð.

Stefán og Harpa rifja þetta upp: “Við höfðum átt í viðræðum við eigendur Urriðafoss, en héldum satt að segja að það væri að renna út í sandinn. En svo var gengið í verkið og svo fór eins og fór, veitt var á tvær stangir þá daga sem ekki var veitt í net, en þegar svona vel fór að ganga var netadögum fækkað. Það var mikið af stórlaxi í byrjun og veiddist hann vel framan af júní, þá blandaðist aflinn með smálaxi sem var síðan uppistaðan þegar leið á sumarið. Svona nokkurn vegin sama og annars staðar. En útkoman var heildarveiði uppá 755 laxa, þó var salan ekki fullkomin á svæðinu seinni part sumarsins og um haustið,” segja þau hjón.

Þjórsá, Urriðafoss
Þetta er augljóslega krefjandi veiðislóð, en gjöful er hún!

Spurning hvort að nokkuð annað svæði á Íslandi hafi verið með meiri meðalveiði á stöng síðasta sumar? Hvað segja þau hjón um grugg, vatnsmagn, aðstöðu, síðsumar/haust og sjóbirting sem meðafla?

“Þjórsá er náttúrulega jökulvatn og getur orðið dökk. Menn höfðu áhyggjur af því að þetta gæti skemmt veiðiskapinn í Urriðafossi. Þetta var síðan þannig sumar að bændur sögðu okkur að liturinn á ánni hafi verið óvenjulega slæmur. Um tíma var áin eins og súkkulaðisjeik. Samt sem áður veiddist og veiddist vel. Þegar áin fór að dökkna hafði það auðvitað áhrif, en samt veiddist vel.

Um vatnsmagnið þá verður að segja að þarna þarf að fara að öllu með gát. Áin getur farið í 600 rúmmetra og þá erum við að tala um 12-14 Ytri Rangár og það segir sig sjálft að bera verður virðingu fyrir svoleiðis. Áfengi skal ekki haft um hönd þarna og við hvetjum folk til að hafa ekki born með í veiðina. Þá hvetjum við til að ekki sé vaðið. Það þarf tæplega, laxinn liggur yfirleitt í góðu kastfæri. Síðan getur það gerst að laxar, sérstaklega þeir stærri, láta sig vaða niður flúðir og þar er grýtt og erfitt. Þá verða menn að spyrja sig: Hvort skiptir meira máli, að ná laxinum eða hætta lífi og limum?

Urriðafoss, Þjórsá
Tröllslegur veiðistaður, en sá besti síðasta sumar!

Það seldist ekki þétt þegar leið á sumarið og haustið var ekki sérlega vel selt, en það var samt verið að fara. Það héldu kannski margir að þar sem þetta væru hreinir göngustaðir þá myndi veiðin fjara út. Samt var fínasta veiði um haustið. Ef maður skoðar í veiðibók þá eru einstakir veiðimenn að fá fá 8, 10 og jafnvel upp í 12 laxa yfir daginn. Uppúr miðju sumri er síðan kominn sjóbirtingur og það er talsvert af honum. Margir af góðri stærð, 2 til 6 pund og stærstu voru allt að 13 pund. Það er nógu mikill birtingur til að bændur henda aftur út netum um haustið þegar laxveiðin er frá, gagngert til að gera út á sjóbirting. Þannig að hann er mikilvægur meðafli þegar líður á vertíð.

Um aðstöðu, þá er það að segja að unnið er að því að koma strúktur á veiðina. Þetta er svolítið eins og við Laxá í Aðaldal fyrir 70 árum. Engar hefðir, engar venjur, enginn strúktúr. Við vorum bara með tvær stangir í Urriðafossi í fyrra, en þó að besta svæðið hafi verið tiltölulega afmarkað þá var fínasta veiði víða á svæðinu og í krafti þess er stöngum fjölgað í fjórar. Hinu megin, á nýja svæðinu, verða líka fjórar stangir. Svæðið í Þjórsártúni er lengra og það eru glæsilegir staðir sem gefa góð fyrirheit, ekki bara þar sem netin hafa legið við Urriðafoss. Við höfums elt þetta frá morgni til kvölds og það er mikil eftirspurn eftir svoleiðis laxveiði, að menn séu ekki bundnir yfir veiðihóteli og uppihaldi. Aðstöðuna þurfti hins vegar að bæta og nú höfum við aðgang að sumarhúsi á svæðinu þar sem men geta komist í skjól, á salerni og grillað sér miðdegisverð.”

Svo mörg voru þau orð Stefáns Sigurðssonar og Hörpu Hlínar Þórðardóttur sem saman standa að Iceland Outfitters. Þau veðjuðu á Þjórsá, af öllum ám, en hvers vegan ekki? Líklega hafa fáar ár á Íslandi stærri laxastofna. Samt eru uppi áform um að virkja. Virkja m.a. umræddan Urriðafoss. Það gæti torveldað þau áform að opnað sé svo rækilega fyrir hlunnindin sem þarna eru. Hjónin hjá IO eru því ekki aðeins að vinna happadrættisvinnig, heldur mögulega að gera villtum laxastofni Þjórsár feykilegan greiða.