Við höldum áfram og hér er komin þriðja  greinin af þó nokkrum sem munu birtast hér á næstu misserum þar sem við reynum að svara margvíslegum spurningum sem vakna á bökkum vatnanna.

                                       Hálfskýjað/sól og vindur.

ÁH: Svarið hér skarast við spurningu númer tvö í röðinni, varla nema lítill stigsmunur á skilyrðunum og því er stripp með löngum taum og bjartri flugu frábær kostur.

HE: Hér gildir að nota tækifærið og veiða þá hylji sem ekki er hægt að veiða í logni, og jafnvel krefjast þess að vaðið sé út í hylinn. Hér nota ég enn eins granna tauma og hægt er, því gjarnan speglar af taumefninu. Hægt er að brúka þurfflugu við þær aðstæður þar sem gola gárar vatnsflötinn hæfilega. Bjartar flugur eru málið.

SS: Hef ekki miklu að bæta við fyrri svör hérna, en vil þó nefna að maður gerir vel að reyna að velja sér veiðistaði eftir aðstæðum. Í logni og sól eru vissir staðir virkilega erfiðari en aðrir þannig að réttast væri að geyma þá þangað til að það dregur fyrir sólu eða að golan ýfir upp yfirborðið.

gg: Þetta er oft gott veiðiveður, vindur skiptir öllu máli, sérstaklega ef að úrkoma er engin og sólin er að skína, þó ekki sé nema af og til. Langur taumur, smá fluga og strippa þar sem veiðistaður gefur færi til þess.

                                           Meiri vindur/rok

ÁH: Þetta er gott strippveður, hálftommu Sunray yrði ofarlega á lista hjá mér við þessar aðstæður.

HE: Oft er það svo að við þessar aðstæður notar laxinn tækifærið og færir sig úr mesta straumnum, sér í lagi ef vatn er með minna móti. Það tekur mikið þrek hjá laxi að liggja látlaust í straumþunga, og ef mikil gára er á vatnsyfirborðinu má oft sjá laxa færa sig á grynnra vatn eða nota tækifærið og ganga fram ársvæðin. Við þessar aðstæður er hægt að gera góða veiði á lygnum stöðum sem alla jafna eru illveiðanlegir. Veiði með portlandsbragði verður oft erfið nema í miklum straumþunga. Hins vegar falla margir í þá gryfju að veiða á of stórar flugur í roki og öldugangi. Það er misskilningur.

SS: Þetta er fínasta veiðiveður að öllu jöfnu og kallar ekki á nein sérstök vinnubrögð. Stripp, Sunray, hits, þetta gæti allt gengið, allt eftir eðli veiðistaðarins.

gg: Þetta er bæði hvimleitt veður til að veiða í, en að sama skapi mjög gott veiðiveður. Almennt séð er ég hér enn með smáa flugu, en þessi skilyrði gefa færi á að stytta tauminn dálítið, enda meiri hætta á vindhnútum í svona veðri. Þar sem færi gefast ætti að strippa í roki. Sá sem innleiddi þá veiðiaðferð hér á landi, þýski myndlistarmaðurinn Bernd Koberling, vildi helst strippa í roki, þá sá hann stundum laxinn æða á eftir flugunni í öldufaldinum.

                                        Dumbungur, vindur

ÁH: Er hér mikið til á sömu nótunum og í fyrri tilsvörum, en vil dekkja fluguna. Fyrsta val yrði svört Frances númer 12.

HE: Dekkri flugur.  Það er svo að þetta eru oft aðstæðurnar sem veiðimenn á suð-vesturhorninu glíma við í vestanátt. Sú vindátt er líklegast ein sú versta sem hægt er að fá við veiðar, og gjarnan færist grámi yfir með leiðindarbirtu. Ef hins vegar er hlýtt í lofti og jafnvægi milli vatns og lofthita er þetta gjarnan prýðis veiðiveður, sér í lagi eftir mikið sólfar.

SS: Þegar dumbungurinn er kominn reynist mér oft mjög vel að nota Colly dog númer 12 eða 14, strippa hana. Annað hvort vil ég long tail útgáfu eða að vængurinn sé í það minnsta vel aftur fyrir öngulinn. Strippið getur verið breytilegt, löng og jöfn, eða stutt með rykkjum. Báðar aðferðir virka vel. Ég myndi segja þetta sama ef að við værum að tala um dumbung og logn.

gg: Þetta er mjög gott veiðiveður og einmitt skilyrði sem gefa aukna von ef að vatnsmagn er óþægilega lítið. Þá er hægt að standa nær laxinum og því minna sem hann styggist því meiri líkur eru á að hann taki fluguna.