Ruth Sims heitir ung kona, Bandarísk og einnig frumbyggi af Navajo ættum, og konur hafa gert sig æ gildandi í stangaveiði og sérstaklega þykja þær vera næmari en karlar þegar kemur að fluguveiði. Ruth er ekki gömul í hettunni, en henni bauðst að koma til Íslands og lenti í ævintýri ævintýranna…

Ruth Sims
Ruth Sims

 

Ruth ræddi við Veiðislóð og það er tímabært að upplýsa að ævintýrið átti sér stað í Þingvallavatni. Hún sótti ísaldarurriðana heim og fór heim með minningu sem fylgir henni í gröfina. Hún segir: „Í fyrsta skipti sem ég sá myndir af þessum urriðum sem veiðast í vatninu þá hreinlega missti ég andlitið. Ég var á fluguveiðimessu í Seattle í Washington (hvaðan ég er ættuð upprunalega), þar voru sýndar kvikmyndir og ein þeirra var frá Íslandi þar sem þessir hrikalegu urriðar eru í öndvegi. Ég varð gersamlega gagntekin af fegurð þessara fiska og ekki síður því umhverfi sem þeir búa í. Ég var með Þingvallavatn og Íslandsferð á heilanum í tvö ár en síðan fyrir ríflega ári síðan hafði Robert Selfors (arcticsilverflyfishing) samband við mig. Hann hafði heyrt af áhuga mínum á fluguveiði og spurði hvort ég vildi bætast í hópinn hans Ég kynnti mér málið og í ljós kom að hópur hans veiddi m.a. í Þingvallavatni og minningarnar um þessa hrikalegu urriða fylltu öll vit mín. Í janúar nefndi ég við Róbert að ég hefði alveg sérstakan áhuga á því að heimsækja Ísland og kynnast þessum ísaldartröllum. Þá kom á daginn að hann var að skipuleggja ferð með hópinn sinn til Íslands og tróð mér með. Ég bókaði flugið í skyndingu án þess að hika augnablik, þetta var eins og draumur. Eitt er víst að ég mun aldrei gleyma dvölinni og hvað þá stóra urriðanum sem að ég setti í og landaði. Þetta voru einhver mögnuðustu augnablik ævi minnar. Þegar maður setur svoleiðis atburð í samhengi við umhverfið, þá einfaldlega situr það fast í minningunni. Það er varla hægt að tala um magnaðri staði til fluguveiða. Ef að eitthvað er öruggt, þá er það að ég mun koma aftur, fyrr heldur en seinna.

Ruth Sims
Með veltiköstin á hreinu, Ruth Sims að leggja fluguna.

 

Ruth sum sé upplifði drauminn við komuna til Íslands. En hvað dró unga indjánastúlku að fluguveiði? „Sem menntaður verkfræðingur þá sé í veröldina í tölum og útreikningum. Sama gildir um fluguveiði. Þar er allt á floti í lausnum, lausnum sem ég þarf að finna og leiða til lykta. Ég sá vandamálin greinilega, sá hvað ég þurfti að gera, en vandinn var kannski fyrst og fremst sá að ég var ekki nægilega góður fluguveiðimaður. Ég áttaði mig á því og sætti mig við það. Ég horfði svo oft og lengi á aðra setja í og landa fiskum að ég vissi hvar þá var að finna. Þetta leiddi hugann að því að að ég ætti að leita eftir því hvað ég væri að gera rangt. Sem að ég gerði. Ég gerði mig heimakomna í veiðibúðirnar og á tíunda mánuði kom loks vendipunktur þegar einn búðarkarlinn bauð mér með sér. Ég hafði aldrei fyrr fengið umsögn eða gagnrýni á hvernig ég kastaði, lagaði línu eða legði fluguna fyrir fisk. Það varð síðan allt vitlaust þegar ég loksins náði hundrað prósent dauaðreki. Þá urðu viðbrögðin með þeim hætti að ekki varð aftur snúið.“