Það er ljóst að á nýliðnu laxveiðisumri var veiðin á Norðausturhorninu ekki sem skyldi. Kannski ekki beint léleg(með undantekningum) en lakari en í fyrra og hér koma umsagnir um stöðuna á þessu yfir höfuð spennandi veiðisvæði….
Við erum nú ekki með allar lokatölurnar, en eitthvað. Það er lítið að marka Hölkná í Þistilfirði, hún er svo lítið veidd að veiðitala myndi segja lítið. En það sem við vitum er að það var á rórri nótunum þar. Sömuleiðis í Hafralónsá, en sú stórkostlega laxveiðá hefur verið í dálítilli lægð síðustu árin. Svalbarðsá endaði með 338 laxa sem er keimlíkt síðasta sumri þegar 368 laxar veiddust. Allra síðustu ár hefur veiði verið á svipuðum nótum, eða 274 til 403 laxar síðustu fimm sumur.
Í næsta nágrenni eru fleiri ár á Sléttu og í Þistilfirði, tökum sem dæmi Ormarsá og Sandá. Arthúr Bogason hefur umsjón með þeim og hann segði okkur eftirfarandi: „Ormarsá: Heildarveiði 313 laxar, slétt 30% niður frá í fyrra. Þá féll meðalveigtin um 28% milli ára, úr 8,6 pundum í 6,2 og var sú lægsta til langs tíma. Einn 98 cm lax skilaði sér. Ástand bleikju virtist gott og urriðinn sömuleiðis í sæmilegu formi. Sandá: Heildarveiði 257 laxar og að auki 5 bleiklaxar (hnúðlaxar). Samdráttur um 33% frá 2016. Meðalþyngdin var ein sú lægsta frá 1964, 6,4 pund. Tveir 100 cm laxar skiluðu sér, annar fískurinn var hrygna. Í báðum ánum er ströng sleppiskylda og sé reiknað með henni er Ormarsáin ögn
yfir langtíma meðaltali, en Sandáin talsvert undir.“
Á Austfjörðum eru það helst Jökla og Breiðdalsá sem koma við sögu. Strengir eru leigutakar að báðum og sagði Þröstur Elliðason framkvæmdsastjóri Strengja þetta: „Það dylst engum að Breiðdalsá átti erfitt uppdráttar. Vissulega var minna af laxi í ánni alveg eins og í fleiri ám á landssvæðinu. En við það bætist að þurrkar voru þeir hörðustu í manna minnum og Breiðdalsá er mjög næm fyrir þurrkum. Síðan komu svaðaleg flóð í september og áin var gersamlega óveiðandi langtímum saman.“ Þannig að það er hægt að spyrja sig hversu mikil áhrif hafði þetta allt saman á heildarveiðina? Það veiddust aðeins 106 laxar í Breiðdalsá sem er skelfilegt og það lang slakasta sem þar hefur sést síðan að Þröstur hóf sitt mikla ræktunarstarf við ána. Frá 2012 hefur þó mátt marka lægð í ánni eftir stöðugan uppgang fram að því, en umrædd sumur gáfu á bilinu 290 til 464 laxa, á sama tíma og 2011 gaf 1430 laxa og 2010 1178 laxa. Árin þar á undan er áin í stöðugri sókn, gefandi á bilinu tæplega 800 og upp undir þúsund laxa.
Hins vegar gekk betur í Jöklu, þar komu 355 laxar á land. Saga hennar sem laxveiðiá er mjög stutt, nær aðeins aftur til 2010 og á því bili hefur gengið á ýmsu, en aðallega hefur veiðin verið á uppleið. Þrjú sumur hafa verið lakari frá upphafi, þau gáfu 306, 335 og 305 laxa. Bestu árin hafa gefið 815(mest) 585, 507 og 385 laxa, þannig að segja má að Jökla sé nú orðin „stabíl“ laxveiðiá.










