Síðustu lokatölurnar í laxveiðinni eru komnar í hús, Ytri Rangá er efst að venju hin seinni ár, Eystri er í þriðja sæti eins og verið hefur seinni part sumars. Metveiði var í Þverá í Fljótshlíð og síðan eru nokkrar lokatölur til viðbótar….

Sum sé, Ytri Rangá endaði með 7451 lax, sem er hörkuveiði þó að um 1872 laxa sveiflu sé að ræða frá fyrra sumri. Mok og fullt af laxi. Það var ekki alveg eisn líflegt í Eystri, en hún situr samt í þriðja sæti með 2143 laxa, í fyrra 3254, eða 1.111 löxum færra. Þverá í Fljótshlíð var með sína bestu tölu, 448 laxa þrátt fyrir að fáir væru að veiða síðustu vikuna. Affallið var hins vegar slakt með aðeins 193 laxa.  Jóhannes Hinriksson umsjónarmaður Ytri Rangár var ánægður í vertíðarlok og sagði í samtali við VoV:  „Þetta var jöfn og góð vertíð, það góð að næsta ár er uppselt fram í okt 2018. Lokatala var 7451. Göngur voru hefðbundnar, ólíkt 2016 þegar laxinn kom eiginlega of snemma, nú voru göngur jafnar og á eðlilegu róli.“

Þverá endaði með 448 laxa sem er hennar lang besta útkoma á tiltölulega stuttum ferli sem boðleg laxveiðiá. Það besta til þessa var sumarið 2013 þegar 307 laxar komu á land. Öðru gildir um Affallið, 193 laxar þar sem er það lakasta þar til margra ára.

Jóhann Davíð, Leirvogsá
Hann er á í Leirvogsá. Mynd Jóhann Davíð Ólafsson.

Af öðrum ám má nefna Leirvogsá þar sem sumarveiðin var aðeins 116 laxar sem er mjög slakt á þeim bæ. Þar var í fyrsta skipti maðkveiðibann og sýndist sitt hverjum um það. Margir kunnir kappar sögðu veiðina myndu hrynja því svo mikið veiðist af laxi á maðk í örfáum stöðum neðst í ánni. Jóhann Davíð Snorrason, sölustjóri hjá leigutakanum Lax-á sagði á sínum tíma að breytingin væri jákvæð, laxinn fengi þá að ganga í ána og dreifa sér. Hins vegar kom á daginn að bæði voru göngur frekar kraftlitlar og svo leið áin fyrir langavarndi þurrka. Hefur verið ákveðið að leyfa aftur maðk með ákveðnum skilyrðum.  En Jóhann Davíð sagði okkur um Leirvogsá í vikubyrjun: „Það komu 116 laxar úr Leirvogsá. Það voru lélegar göngur og flugan var ekki að gera sig sem best.“

Jóhann Davíð sagði veiðina einnig hafa verið rólega í Langadalsá í Ísafjarðardjúpi, aðeins 140 laxar veiddust þar, en sami slakinn var í nágrannaánni Laugardalsá þar sem sumarveiðin var aðeins 175 laxar, á móti 251 laxi í fyrra.

Það kvað við annan tón í Valgarði Ragnarssyni leigutaka Húseyjarkvíslar í Skagafirði. „Vertíðin var fín í Kvíslinni, alls veiddust 230 laxar. Ég hef ekki endanlega tölu um birtinginn, en í lok september voru þeir orðnir 600 talsins og margir stórir.