FLJÓTAÁ
– Bráðfalleg lax- og sjóbleikjuveiðiá

Fljótaá er bráðfalleg lax- og sjóbleikjuveiðiá sem fellur um Fljótin í utanverðum Skagafirði. Hún leynir á sér, er stríð, vatnsmeiri en menn gætu haldið, og býður upp á fjölbreytt og falleg veiðisvæði þar sem fluguveiði fer einstaklega vel.
Fljótaá er veidd með fjórum stöngum. Síðustu sumur hafa verið geysilega gjöful. 2009 var þar metveiði í laxi, 466 laxar komu á land og mikið af bleikju, hundruð fiska og bleikja um alla á. 2010 var minna af smálaxi, en veiðin samt prýðileg, 283 laxar veiddust sem er langt yfir meðalveiði síðasta áratugs í ánni. Meðalþungi laxa var mun meiri heldur en 2008 og enn og aftur veiddust nær fimmtán hundruð sjóbleikjur.
Frábær veiðiá fyrir fjölskyldur, minni hópa og fyrirtæki.
Leigutaki Fljótaárer Orri Vigfússon. Félagar í Stangveiðifélagi Siglfirðinga eru í samvinnu við Orra og stunda ána frá heimaslóðum, en Orri rekur veiðihús í dalnum þar sem rými er gott og öll helstu þægindi í boði.
VEIÐILEYFI:
Hafið samband vegna tíma,
fjölda stanga og
annarra óska: laxa@icy.is


