Frábært veiðisvæði í hættu
Guðmundur Falk með rosalegan urriða úr Tungná.
Frá því var greint í fréttum í gær að Ístak væri að undirbúa að setja vinnu við Búðarhálsvirkjun í Þjórsá á fulla ferð og finnst mörgum það eflaust jákvætt skref í þágu uppbyggingar osfrv. En hér á landi er vart hægt að virkja án þess að skemma eitthvað í leiðinni.

Boltableikjur úr Köldukvísl. Mynd Birgir Örn Arnarsson.
Þar sem er virkjun, þar eru uppistöðulón og útlit er fyrir að uppistöðulón Búðarhálsvirkjunnar muni sökkva mjög svo skemmtilegu og óvenjulegu silungsveiðisvæði, eða því sem kennt hefur verið við Köldukvísl og Tungná. Fyrrum voru þær systur urrandi jökulfljót, en virkjanagerð breytti þeim í bergvötn og þau hafa fóstrað magnaða silunagstofna síðustu árin sem hafa áunnið sér vinsældir út fyrir landssteinanna. Bleikjan í Köldukvísl er stórvaxin í meira lagi og það sama er að segja um urriðann í Tungná.

Stórbleikja úr Köldukvísl. Mynd Birgir Örn Arnarsson.
Á spjallþræði sem stofnaður hefur verið um þetta mál á veidi.is segir Guðmundur Falk, stangaveiðimaður m.a.: „Þarna er verið að fara að sökkva mínu uppáhaldsveiðisvæði til fjalla undir uppistöðulón og hvar er VG núna sem stöðva allan framgang á flatneskjuni hér á Reykjanesi sem er tilvalið undir iðnað og sjálfu sér nægt með orku úr gufu ef virkjanaleyfi fengjust? Hvað skyldu mörg Rjúpnaóðöl verða eyðilögð og hve mörg gæsalönd sökkva og hvað skyldu raflínur landsins taka mikið magn af fugli í áflogi og þær eru að veiða allt árið um kring. Ísland er komið í slangurorðabókina þ.e.a.s mynd af þessu guðsvolaða skeri á eftir orðinu HRÆSNI“
