Hjálmar Árnason: Veiðikona fæðist

Soffía "litla systir" Árnadóttir með sjóbirtinginn sem greint er frá í frásögninni. Mynd send af Hjálmari Árnasyni.
Hjálmar Árnason alþingismaður hefur áður svarað kalli okkar og sent efni, veiðisögur og myndir. Hann þurfti því að kafa dýpra er við báðum um meira af því góða. Og auðvitað snaraði hann fram góðri veiðisögu frá liðinni vertíð. Hann kallar hana “Veiðikona fæðist”.
Hjálmar hefur orðið: “Hún Soffía, litla systir mín (er kominn á fimmtugsaldurinn en litla systir samt) fór í merkilega veiðiferð í sumar. Fía er afar áhugasöm veiðikona – ein af þeim sem verður ha´lf brjáluð á bökkunum þegar fiskur tekur agnið góða. Ekki er langt síðan hún hóf veiðiskap og hefur verið undir natinni og fumlausri leiðsögn eiginmanns síns, Árna Geirs Pálssonar (sem virðist líka vera í sérlega sterku ástarsambandi við veiðigyðjuna). Veiðiferðir þeirra mætu hjóna einkennast af því að konan er manni sínum algjörlega undirgefin (en sú hlýðni nær ekkert út frá bakkanum). Árni Geir setur saman, hnýtir á flugu, bendir á veiðistaðina, hvetur, leiðbeinir, landar, plastar og hrósar. Þetta er m.ö.o lúxus fyrir hana Fíu systur – lúxus að vera konan hans Árna Geirs. En svo komst hún inn í einhvern kvennahóp. Fóru stelpur galvaskar og kátar í Grenlækinn undurfagra. Nú var enginn Árni Geir, engin þjónusta. Og samt gerðust undrin: Hún fékk fisk – og hann ekkert smáræði. Þó nokkuð sé liðið síðan atburðurinn átti sér stað þá færist enn blik og gleði yfir litlu systur þegar hún fær að lýsa atburðarásinni. Merkilegast í þeirri frásögn er einföld setning. Og ég gat þetta allt sjálf!
Fullburða veiðikona er fædd og mágur minn fær örugglega góðar leiðbeinigar á bökkunum næsta sumar.
Myndin segir allt um hina umræddu veiði.
Hjálmar Árnason
