SKRÝTIN OG SKEMMTILEG TILVILJUN
Skrýtnar og skemmtilegar tilviljanir setja oft sterkan svip á veiðitúra. Tungufljót í Vestur Skaft er ekki þekkt fyrir laxveiði, öllu heldur væna birtinga sem í ána ganga og veiðast stundum. En veiðifélagar tveir lentu þó í sérkennilegri laxveiði þar eystra nú í haust.
Já, þetta var nærri miðjum september og eitthvað smákropp af birtingi að komast í gang. Þetta holl lenti reyndar í svolitlum kulda og minnkandi vatni og tveimur hollum á eftir “skot”-holli sem veiddi góðan slatta. Sjóbirtingsveiðin var því fremur róleg og fáir fiskar að koma á land. Eitthvað virtist þó vera af laxi á svæðinu og nokkrir slíkir hífðu töluna í hollinu upp.
Nú segir af veiðifélögum tveimur á einni stönginni sem voru fisklausir eftir tvær fyrstu vaktirnar. Þeir báru sig vel, en auðvitað vilja menn setja í fiska og veiða. Í ljósaskiptunum á heila deginum voru þeir staddir við Breiðufor þar sem sést hafði til sjóbirtings stökkva nokkru áður. Býsna stór fiskur þar á ferð. Menn höfðu líka komið auga á einhverja laxa utan í neðsta klettinum að vestanverðu. Nú byrjaði annar þessara kappa lengst upp frá, alveg við lækjarósinn efst í hylnum og þar rétt fyrir neðan er nokkuð veiðilegt. Undir var “þýsk” Snælda með keiluhaus(sjá mynd EFI) og akkúrat þarna var flugan negld. Á land kom 5 punda hængur. Áfram reyndu þeir félagar og tók nú félaginn við, reyndi upp frá en færði sig svo neðar. Utan í neðsta klettinum var svo önnur negling og aftur var 5 punda laxi landað. Á sömu flugu.
Nú voru þeir félagar í skýjunum, túrnum bjargað og allt gott á himni og jörð. Hópurinn riðlaðist nokkuð þá um kvöldið, einhverjir þurftu að hætta snemma og fara heim, þannig að skiptingar fóru þannig að þeir félagarnir gátu farið aftur í Breiðufor undir hádegið síðasta morguninn.
Skulum við ekkert vera að hafa of mörg orð um gang mála, þeir einfaldlega endurtóku leikinn, nákvæmlega. Lönduðu tveimur löxum, jafn stórum og fyrr, sama kynferði, hæng á efri staðnum og hrygnu á þeim neðri, á sömu flugu. Miðað við hversu lítil laxveiði telst vera í Tungufljóti hlaut þetta að teljast ótrúleg tilviljun og alls veiddi hollið 7 laxa, en aðeins 5 birtinga.
