Veiðin í Veiðivötnum svipuð og síðustu ár

Dídí Carlson með þann stærsta úr vötnunum þetta árið. Myndin er fengin af vef Veiðivatna.

Veiði er nú lokið í Veiðivötnum og var veiðin ámóta og síðustu ár samkvæmt því sem stendur á vef Veiðivatna þar sem vaktin hefur verið staðin að vanda með miklum myndarleik.

Á vefsíðunn segir meðal annars: „Alls veiddust 29835 fiskar í Veiðivötnum á veiðitímabilinu 18. júní – 11. september. Þetta er svipuð veiði og undanfarin ár. Þar af fengust 19314 á stöng (12126 urriðar og 7188 bleikjur).

Alls veiddust 18134 fiskar í Veiðivötnum á stangveiðitímanum, þar af 10982 urriðar og 7152 bleikjur. Flestir fiskar veiddust í Litlasjó, en þar komu 3696 urriðar á land. Í Snjóölduvatni veiddust 2971 fiskur, mest bleikja.
Stærsti fiskur sumarsins var 10,8 pd urriði sem Dídí Carlson veiddi í Grænavatni og besta meðalþyngdin var 2,75 pd í Pyttlum. Auk Grænavatns komu fiskar um og yfir 10 pd á land í Breiðavatni, Hraunvötnum, Pyttlum og í Skyggnisvatni.

Sjá má mun ítarlegri úttekt á vefnum www.veidivotn.is