Veiðin í Laxá í Aðaldal fer betur af stað….

Aðalsteinn Jóhannsson með 90 cm hrygnu á Radian úr Sjávarholu.

Veiðin í Laxá í Aðaldal hefur farið nokkuð vel af stað og jafnan borin saman við léleg sumur síðustu ár. En nú lítur allt betur út, hvað sem tíminn kann að leiða í ljós.

Haraldur Orrri Björnsson með 100 plús hæng úr Bjargstreng á hálftommu Sunray.

„Það var meir af stórlaxi í byrjun heldur en síðustu sumur og nú er farið að örla á smálaxi sem hélt uppi því sem þó veiddist síðustu ár. Þetta eru orðnir 88 laxar og 26 í síðasta holli. Mest eru þeir kannski eðlilega að veiðast enn á neðstu svæðunum, en það er líka kominn lax upp í á,“ sagði Jón Helgi Björnsson á Laxamýri í samtali við VoV í kvöld. Hann sagði nú þegar tvo yfir 100 cm komna á land. „Þetta er alveg ágætis reytingur og allt í þokkalegu lagi. Maður heldur því bjartsýninni,“ bætti Jón Helgi við.