Vel hefur gengið í Laxá í Dölum og ekki bara smálaxar að reka inn nefin. Í dag veiddist t.d. gríðarstór höfðingi.
Það var í Sveddastreng og kom Jón Þorsteinn Jónsson eitthvað þar nærri. Tröllið var 98 cm (ekki hinn útdauði 99 cm lax!) og lét hafa fyrir sér. „Já Dalirnir heilla“, birti Jón Þosteinn í færslu sinni á FB










