Nú hafa ýmis vötn verið að opna að undanförnu, Vífilstaðavatn 1.apríl og nú á sumardaginn fyrsta í gær fimtudag, sjálfur háskóli vatnaveiðimannsins, Elliðavatn. Enn er góður gangur í sjóbirtingsveiði fyrir austan.

Það er svo með vatnaveiðina að stundum fást ekki „tölur“, heldur fréttar eftir leiðum. Elliðavatnið byrjaði t.d. í gær í blíðskaparveðri (miðað við árstíma) og þó að ekkert hafi verið í gangi þegar VoV leit þar við um eftirmiðdaginn, var að heyra á mönnum að það hefði verið líf framan af degi. Þó ekki snemma í morgunsárið. Menn að fá urriða, suma væna, t.d. í Helluvatni, við brúna, úti á Engjum og í Þingnesi. Þekktur Elliðavatnsjarð, geir Thorsteinssonm, var t.d. að lóðsa efnilegt barnabarn sem setti í og landaði 50 cm 4 punda urriða í Helluvatni norðanverðu. Flugan var Micky Finn númer 12. Einn sem var sagður hafa fengið þrjá urriða úti á Engjum var líka með Micky Finn fyrir tvo, en Black Ghost fyrir þann þriðja.
Þá er veiði hafin í Þjóðgarðinum á Þingvöllum og aðeins leyfð fluguveiði fram að 1.júní, enda er talsvert af Öxarárurriðanum í víkunum við Þjóðgarðinn ekki síður en sunnanvert í vatninu. Þá hefur Kleifarvatn verið opnað en þar veiðast jafnan nokkrir vænir urriðar á vorin.










