Slagveðrið var víða til bóta – uppfært

Hilmar Jónsson, Selá
Hilmar Jónsson leiðsögumaður er sáttur eftir að hafa háfað laxinn. Mynd -gg.

Vikutölur angling.is varpa enn og aftur ljósi á hvar og hvernig skilyrðin hafa hagað sér. Vestanvert landið var svelt af regni þangað til um helgina að það flóðrigndi, svo mjög að ár hlupu víða í grugg og flóð. Sumar hafa tekið ágætlega við sér, sérstaklega Þverá/Kjarrá og Laxá í Dölum sem átti sína lang bestu viku. En kíkjum nánar á…

Eystri Rangá er sem fyrr með lang hæstu heildartöluna, þrátt fyrir að tjalda enn viku gamalli tölu. Ný tala var ekki komin við þessa úrvinnslu. Einnig vantaði tölu fyrir Selá sem hefur verið með lang mestu meðalveiði á stöng Þá er Norðausturhornið allt, frá Sléttu og til Vopnafjarðar í góðu standi sem fyrr þó að ögn hafi veiðin dalað víða á svæðinu.

Það vantaði  óvenjulega margar ár í gærkvöldi, en þetta er aðra vikuna í röð, í allt sumar,  sem vantað hefur svo margar ár um miðnæturbilið. Það hefur nú aðeins ræst úr og við höfum bætt inn tölum sem hafa hríslast inn með morgninum. Við höfum raðað listanum upp eins og hann lítur út og merkt við vikugamlar tölur. Þessi listi gæti því átt eftir að breytast eitthvað, en aðallega þó þegar neðar dregur í hann.

Fjórar ár hafa nú rofið þúsund laxa múrinn og aðeins ein komin yfir 2000. Í fyrra telst okkur til að 12 laxveiðiár hafi náð fjögurra stafa tölu, en vandséð að þær verði fleiri en fjórar þetta sumarið. En tíminn verður að leiða það í ljós, í það minnsta þyrfti að koma til sprengihaust í einhverjum ám sem eiga eitthvað inni. Þá komu þrjár ár inn á listann okkar eftir að hafa loksins skriðið í þriggja stafa tölu, velkomnar í klúbbinn Straumfjarðará, Stóra Laxá og Úlfarsá.

Hér kemur svo listinn eins og hann lítur út núna uppfærður á miðjum morgni. Að venju er fremsta talan heildartalan til þessa og næsta tala veiði síðustu viku. Í svigunum koma síðan fyrri vikuveiðitölur þannig að menn geta séð stíganda, hníganda eða stöðugleika. Það er sem fyrr sorglegt að sjá ástandið í mörgum af þekktustu ám okkar, en á móti kemur að víða hefur veiði verið góð og rigningin glæddi daprasta svæði landsins.

Eystri Rangá      2852 – 96 (240 – 493 – 474 – 166 – 557 – 281 – 170 -142 – 63)

Selá í Vopn         1300 – 133 (165 – 208 – 188 – 232 – 170 – 142 – 46 -16)

Miðfjarðará         1193 – 102 (107 – 217 – 120 – 154 – 186 -105 – 84 -55 – 39 – 24)

Ytri Rangá           1184 – 78  (112 – 217 – 147 – 161 – 166 – 127 – 71 – 36 )

Þverá/Kjarrá        787 – 136 (119 – 62 – 49 – 66 – 104 – 111 – 62 – 17)

Urriðafoss            735 – 6  (14 – 10 – 25 – 44 – 58 – 75 – 108 – 63 – 72)

Laxá á Ásum        617 – 51  (64 – 144 – 83 – 73 – 94 – 54 – 36 – 12)

Blanda                  602 – 30   (11 – 20 – 61 – 155 – 60 – 90 – 40 – 25 – 25 – 31)

Hofsá í Vopn        583 – 50   (73 – 68 – 67 – 93 – 106 – 72 – 37 – 13 – 4)

Haffjarðará           530 – 43  (52 – 87 – 46 – 46 – 71 -52  – 42  – 51)

Elliðaárnar           499 – 53   (31 – 22 – 39 – 48 – 66 -84 – 72  – 81 – 45)

Grímsá                  438 – 70   (36 -18 – 53 – 51 – 61 -55 – 28 – 35 – 21)

Laxá í Aðaldal       427 – 31  (50  (51 – 37  – 61 – 42 – 44 – 26 )

Norðurá                 413 – 78  (71 – 23  – 16 – 41 – 77 – 24 – 28 – 26 -18 – 4)

Svalbarðsá            381 – 29   (60 – 69 – 48 – 36 – 42 – 59 – 22)

Laxá í Dölum        353 – 132  (50 – 39 – 38 – 36 – 14 – 16 – 20 – 6)

Langá                   349 73   (28 – 13 – 37 – 50 – 16 – 21 – 12)

Jökla                     339 – 3  (6 – 10 – 83 – 100 – 76 – 28 – 33 – 14)

Víðidalsá              307 – 31  (44 – 34 – 30 – 35 – 31 -45 – 21 – 16 )

Vatnsdalsá            304 – 21  (26 – 24 – 38 – 44 – 57 – 22 – 21 – 8 )

Skjálfandafljót      300 – 10  (50 – 89 – 20 – 39 – 27-12-36)

Hafralónsá            287 – 24  (41 – 27 – 34 – 29 – 57 – 65 )

Hrútafjarðará       240 – 25  (52 – 43 – 18 – 52 – 20 – 16 – 4 – 12)

Laxá í Leirársv.    226 – 41  (16 – 23 – 20 – 30 – 41 – 18 – 15)

Deildará               176 – 25  (20 – 18 – 29 – 19 – 23 – 18 – 14 -5)

Haukadalsá          175 – 10   (27 – 20 – 4 – 24 – 12 – 11 -6)

Hítará                   175 – 22  (3 – 23 – 37 – 33 – 6 – 9 – 16 – 17 – 11)

Brennan               173 – 8  (37 – 24 – 0 -1 – 1 – 4 – 15 – 14 -39 – 19 – 35)

Laxá í Kjós          172 – 40  (11 – 18 – 20 – 8 – 12 – 21 – 17 – 19)

Flókadalsá           166 – 25  (7 – 9 – 9 – 16 – 22 – 20 – 25 – 33 – 16)

Affall                    158 – 21 (21 – 26 – 38 – 41 – 1 – 5) -viku gömul tala

Fnjóská                137 – 10  (18 -11 – 29 – 13 – 16 – 10 – 12 – 11 – 5)

Ölfusá                  120 – 0   (7 – 8 – 4 – 21 – 12 – 26 – 23 – 12)

Stóra Laxá           102 – 27 (3 – 2 – 5 – 11 – 12 – 13 – 10 – 19)

Straumfjarðará     102 – 23 (12 – 8 – 10 – 6 – 12 – 22 – 8 – 1)

Úlfarsá                 100 – 8 (5 – 8 – 8 – 15 – 8 – 23 – 10 – 15)

Við munum fylgjast með listanum  eitthvað fram eftir vikunni og bæta inn nýjum tölum og raða listanum uppá nýtt ef þurfa þykir. Listinn mun eflaust eitthvað breytast með nýjum tölum, t.d. þorum við að leggja undir að Selá endurheimti annað sætið. Annars geta lesendur séð meira til á www.angling.is