Það er alltaf gaman að segja frá ám sem sjaldan eru í umræðunni, tvær úr þeim hópi eru Selá í Álftáfirði og Laxá í Nesjum, skammt vestan við Höfn í Hornafirði. Austfirðir eru ekki þekktir fyrir laxagöngur, en þessar ár komu sterkar inn í nokkur ár hér fyrrum. Skoðum aðeins hvernig þeim reiddi af 2018.
Við höfðum samband við Ólaf Vilhjálmsson á Höfn, en hann var m.a. um tíma einn leigutaka Selár og vissi um allt sem gekk á á bökkum Laxár í Nesjum. Ólafur sagði: „ Ég hef engar beinar fréttir af þessum ám lengur en heyrt hef ég svona á ská að í Selá hafi verið treg veiði frman af veiðitíma vegna þurrka en í september sáust nokkrir laxar 10-20 um miðbik árinnar. Laxá í Nesjum hefur verið róleg líka þar sem engar sleppingar hafa verið í henni um nokkurt skeið. Hún hefur þó gefið slangur af fiski einstaka sumar undanfarið af sínum náttúrulega stofni kanski 20-30 fiska í bezta falli. Silungsveiði hefur verið nokkuð góð hér í firðinum og þá aðallega í net, sjóbirtingur virðist vera að ná sér vel á strik hér austur frá sem annars staðar og veiðist nokkuð vel af honum og staðbundinni bleikju í vötnum hér í sýslu.










