Vikutölurnar eru komnar hjá angling.is og þetta er allt á uppleið þó að samanburðurinn við síðasta sumar sé enn frekar klénn, nema á nokkrums töðum. Vetrtíðin byrjaði vel, bara ekki eins vel og í fyrra, en vel samt. Svo var beðið eftir strauminum um mánaðamótin iog hann skilaði hörku göngum. Margar ár hafa rétt sig af og fleiri skila sér í næstu tölum. Kíkjum aðeins….
Við ætlum að hafa einungis ár með þriggja stafa tölu og bætum inn eins fljótt og þær detta í þann flokk. Stutt í nokkrar. En sem fyrr þá er fyrst talan frá í kvöld, síðan er í sviga sambærileg tala frá síðasta ári, skeikar þó einum degi, og síðan kemur plús eða mínus á eftir, hvort að áin er betri eða lakari miðað við sama tíma í Fyrra.
Þverá/Kjarrá 843 (656) plús 187
Urriðafoss 577 (435) plús 142
Norðurá 557 (575) mínus 18
Miðfjarðará 320 (451) mínus 131
Haffjarðará 320 (312) plús 8
Blanda 299 (371) mínus 72
Elliðaárnar 228 (238) mínus 10
Ytri Rangá 208 (365) mínus 157
Langá 196 (331) mínus 135
Brennan 188 (150) plús 38
Grímsá 175 (233) mínus 58
Laxá í Aðaldal 113 (100) plús 13
Laxá í Kjós 111 (190) mínus 79
Það eru nokkrar ár að gogga í að vera með, Hítará, Vatnsdalsá, Laxá á Ásum eru allar nærri þriggja stafa tolu. Þær koma inn þegar þær ná þessum áfanga.
En tölurnar eru kannski ekki að spegla það, en það hafa verið góðar göngur á Vesturlandi síðustu daga. Það var stórstreymt um helgina og það kom gusa, það kemur nokkrum dögum seinna í öðrum landshlutum. Þverá/Kjarrá var með 350 laxa viku sem er fáheyrt á þeim bær nema í algerum toppárum, eins og t.a.m 2005 þegar metveiði var í ánni. Í spjalli við Ingólf Ásgeirsson, umsjónarmann Þverár/Kjarrár, þá kom það öllum mest á óvart hversu mikið var enn að ganga af stórlaxi þótt komið væri fram í júlí. “Þetta var alveg þriðjungur, 75 til 90 cm boltar, stórlaxinn er að stympla sig aftur inn á Vesturlandi eftir svo mörg mögur ár,” sagði Ingólfur.










