Veiðihornið hefur hafið innflutning á flugum sem eru fremur óvenjulegar að sjá sbr. myndirnar sem hér birtast. Margir hérlendir veiðimenn, einkum þó þeir sem eru mikið í vatnaveiðibransanum þekkja til Pólverjans Cezary Fijalkowski sem búsettur hefur verið á Íslandi um árabil og verið einstaklega veiðinn silungsveiðimaður. Þetta er flugur sem hann notar öðrum fremur.
VoV heyrði í Ólafi í Veiðihorninu og spurði hann út í þessar flugur og tilurð þeirra í versluninni hjá honum. Hann sagði: „Cezary Fijalkowski sem búsettur hefur verið á Íslandi í fjöldamörg ár er líklega sá sem þekkir stóru urriðana í Þingvallavatni einna best sem veiðimaður. Við þekkjum að minnsta kosti engan sem landað hefur eins mörgum stórum og flottum urriðum úr vatninu og hann. Í gegnum tíðina hefur Cezary notað sérstakar flugur, all ólíkar þeim sem flestir íslendingar hafa notað. Í flestum tilfellum eru streamerarnir sem Cezary notar bæði stærri en einnig léttari en flestar þær þungu flugur sem notaðar eru af flestum veiðimönnum.
Það var í fyrrasumar að Cezary kynnti okkur fyrir flugunum sem hann er að nota og sagði okkur frá uppruna þeirra.Streamerarnir sem Cezary notar eru hnýttir í Póllandi. Flestir eru þeir hnýttir af Marek Imierski sem er margfaldur Póllandsmeistari í fluguhnýtingum og afburðagóður veiðimaður líkt og Cezary sjálfur. Í samráði við Cezary völdum við nokkrar af veiðnustu flugum síðustu ára og höfðum samband við Marek Imierski í þeim tilgangi að fá hann til að hnýta fyrir okkur. Samstarfið komst á og hefur gengið svona líka ljómandi vel því viðtökurnar við flugum Marek hafa fengið miklu betri viðtökur en við þorðum að vona. Flugur Marek Imierski eru ekki í hópi ódýrra flugna. Verðið er 1.450 kr. stykkið. Í fyrsta lagi eru fluguranr hnýttar á sterkustu mögulegu króka og úr dýru hráefni auk þess sem Marek er listahnýtari og sem fyrr segir margfaldur Póllandsmeistari í hnýtingum.
Við vitum til þess að menn voru að fá fína veiði á þessar flugur í Þingvallavatni í vor og einnig vissum við til þess að þær voru að gefa góða veiði í sjóbirtingi í Vestur Skaftafellssýslu, t.d. bæði í Tungulæk og Tungufljóti. Eflaust á hróður þeirra eftir að aukast þegar fleiri kynna sér þær og kasta þeim fyrir fisk.“
Myndirnar af flugunum tók Heimir Óskarsson.
















