Það muna allir að laxavertíðin í fyrra var ekki par glæsileg. Vantaði smálax, en góðar stórlaxagöngur björguðu því sem bjargað varð. Í ár er eiginlega hvergi bati nema í Borgarfirði og í minna mæli á Suðvesturhorninu. Og batinn er….

…já hver er batinn? Flestir sem komu að laxveiði í Borgarfirði voru samdóma um að smálaxagöngur hefðu verið mun betri í ánum í sumar heldur en í fyrra. Mikið var síðan talað um hvað þær ættu „mikið inni“ ef að skilyrðu tækju uppá því að batna eftir vikulanga þurrka hásumarsins.

Stóru árnar í Borgarfirði, Grímsá, Norðurá, Þverá/Kjarrá og Langá voru allar all nokkru betri en í fyrra, sérstaklega Grímsá. Síst Þverá/Kjarrá. En kíkjum á.

Af því að við nefndum Grímsá sérstaklega með góðan bata, þá er hún með 1290 laxa á móti 608 í fyrra. Munurinn er 682 laxar, sem er glæsileg endurkoma. Kannski skiptir máli með Grímsá versus hinar árnar, þ.e.a.s. aðallega Norðurá og Þverá/Kjarrá, að Grímsá heldur mun betur vatni í þurrkatíð?

Norðurá er með næst besta batann, hún endaði með 1719 laxa á móti 1342 í fyrra, batinn er 377 laxar.

Langá er með þriðja mesta batann, hún endaði með 1701 lax á móti 1433 í fyrra, bati upp á  268 laxa.

Loks Þverá/Kjarrá. Lokatalan þar 2060 laxar en var 1902 í fyrra. Bati upp á 158 laxa. Þó að batinn sé minnstur í ánni þá er hún samt með vel hæstu heildartöluna, 341 laxi meira en Norðurá.

Samtals gáfu þessar fjóru stóru Borgarfjarðarár 6770 laxa í sumar, alls 5285 í fyrra. Samtals skiluðu þær því 1485 laxa bata frá fyrra ári.

Flóka litla er þarna í héraðinu líka. Hún var einnig betri en í fyrra þó að veiðin hafi verið all svaðalega róleg undir það síðasta. Þarveiddust 423 laxar á móti 369 í fyrra, bati uppá 54 laxa. Miðað við stangarfjölda er það kannski sambærilegur bati við það sem gekk og gerðist í héraðinu. Þá vitum við að Reykjadalsá fór líka framúr sjálfri sér milli ára, hún var með ríflega hálft þriðja hundrað í sumar, þökk sé rífandi góðri haustveiði, ekki í fyrsta skipti.