Það er kannski rigning akkúrat í augnablikinu en síðan koma aftur bjartir og sólríkir dagar. Hér fjöllum við um flugu sem að hefur reynst vera einhver besta sólskinsflugan sem við höfum heyrt um.
Brá heitir hún og hefur flogið fremur lágt undir radarinn. Þegar veiðni flugna er gerð upp í vertíðarlok eru alltaf sömu gömlu efstar, Frances í öllum stærðum og gerðum, SRS í öllum sínum stærðum og gerðum og útfærslum. Síðan eru það endalausar „hitstúpur“. Síðan ber oftast í minna mæli á öðrum sem flestar eru þó þekktar, Black and blue, Hairy Mary og svo endalaust framvegis.

En Brá ætti að vera ofar og verður það eflaust ef fleiri tækju upp á því að nota hana. En hvers vegna? Vegna þess að reynslan sýnir að fáar laxaflugur eru jafn veiðnar í björtu og sólríku veðri. Eins og verið hefur svo lengi, lengi í allt sumar. Þó að rigni nú tímabundið mun eflaust bresta aftur á með björtum og sólríkum dögum. Ólafur Vigfússon í Veiðihorninu þekkir vel til flugunnar, enda notar hann hana mikið og hefur lengi haft hana til reiðu í flugubarnum í Veiðihorninu. Hann segir um Brá: „Brá er ein af fjölmörgum flugum sem Einar Páll Garðarsson hefur hannað og hnýtt. Brá hefur verið fáanleg í Veiðihorninu í fjölmörg ár. Flestir sem hafa tekið hana og notað við réttar aðstæður á sólríkum degi hafa komið til baka með veiðisögur. Brá er með öðrum orðum einhver besta laxaflugan á björtum degi.“
Trausti Hafliðason blaðamaður á Viðskiptablaðinu er einn af þeim sem kom til baka með veiðisgöu eftir að hafa notað fluguna við „réttar aðstæður“ eins og Ólafur lýsti. Trausti var fyrrí sumar í Elliðaánum og setti í fimm laxa. Þar af tóku fjórir fluguna Brá.
Brá er hnýtt á silfraðan þríkrók, oftast á 10 til 14, en hefur nokkuð verið notuð enn smærri, t.d. 16. Tvinni, er svartur UNI 8/0. Stél er hár úr hvítlituðum hjartardindli og nokkrir þræðir af Krystal flash. Vöf, ávalt UNI gull tinsel. Búkur er flatt UNI gull tinsel. Skegg er fanir úr svartlitaðri hanahálsfjöður. Vængur, hvít hár af íkorna en refur er einnig sérlega góður. Yfir vænginn koma nokkrar fanir úr svartlitaðri hanahálsfjöður. Haus er svartur.










