Veðurfarið að undanförnu speglaðist aftur í aflatölum síðustu viku. Þurrkar og mikil hlýindi eru ekki það besta, ár að verða vatnslitlar og dregur víða úr göngum þó að smálaxinn hafi tekið aðeins við sér fyrir norðan. Nokkrar ár áttu samt góða viku.

Það má sjá eitt og annað í tölunum. Mjög svipaða sögu og frá fyrri vikunni. Á Suðvesturlandi upp í Borgarfjörð hafa smálaxagöngur verið góðar og veiðin yfirleitt í góðu lagi og víða betri en á sama tíma í fyrra. Nú hefur hins vegar dregið úr göngum og veðurfar verið óhagstætt með hratt minnkandi vatni. Þar var veiðin slök síðustu vikuna, aðra vikuna í röð. Þetta stafar ekki af laxleysi, skilyrðin eru einfaldlega erfið og fiskurmikið til genginn og því verið að kasta á laxa sem eru að taka lit og hreiðra um sig.

Út á Snæfellsnesi voru göngurnar ekki eins hressar og sama má segja um árnar í Dölunum. Þar segir minnkandi vatn einnig til sín, en þó má vel við una gang mála í Haffjarðará. Smálax hefur aðeins verið að ganga í Dölunum, sérstaklega í Laxá sem átti nokkuð góða viku þar sem lúsugir smálaxar létu á sér kræla.

Norðanlands og Norðaustan hafa árnar í besta falli verið þokkalegar, mun minna af stórlaxi en í fyrra og smálaxinn seinn að skila sér. Hann hefur þó aðeins verið að koma um og eftir síðasta stórstraum, en hversu sterkar göngurnar eru liggur þó ekki fyrir. Miðfjarðará og Laxá á Ásum bera höfuð og herðar yfir aðrar ár á þessum slóðum. Í Vopnafirði, þar sem verið hefur niðursveifla síðustu sumur, kætast menn helst vegna þess að ástandið er ekki lakara en í fyrra, bæði Hofsá og Selá hafa gefið nokkrum löxum fleiri en á sama tíma í fyrra. Munurinn þó varla marktækur eins og sjá má í samantektinni sem kemur hér að neðan.

Á sama tíma eru stöku ár nánast ónýtar, t.d. Fnjóská og Svartá, þar rættist ekki úr þó að enn geti það gerst. Þá er ekki hægt að horfa fram hjá stöðu mála í Breiðdalsá. VoV minnist þess varla öll þau ár sem við höfum fylgst með og unnið úr tölum angling.is, að vikuveiði í þekktri og nafntogaðri laxveiðiá sé núll laxar, eins og var í fyrri viku. Og í þeirri síðustu er varla hægt að tala um framför, því skv tölum angling.is var vikuveiðin í Breiðdalsá aðeins tveir laxar. Sem sagt, tveir laxar á hálfum mánuði.

Á Suðurlandi er þetta rólegt nema í Rangánum. Byrjuðu báðar frekar rólega, sérstaklega þó Eystri Rangá, en báðar hafa verið mjög sterkar síðustu vikurnar og Ytri Rangá var nú með lang bestu vikutöluna, hörkuveiði, og veiðitölur í Eystri Rangá hafa verið flottar síðustu vikur. Kíkjum á árnar, hverja fyrir sig og í sviga á eftir hverri vikutölu má sjá hvernig undangengnar vikur gengu.

Hér hefur veiðisaga orðið til, Arnar Már og Alfreð Elíassynir fagna þarna Maríulaxi þess síðarnefnda austur á Iðu og stuttu seinna dró hinn bróðirinn einnig Maríulaxinn sinn. Már Sigurðsson fangaði þetta magnaða augnablik!

Ytri Rangá. Enn ein flott vika þar, sú besta í sumar með 865 laxa (594,717, 668, 332, 205 og 215 laxar). Áin þá komin í 3746 laxa en hafði gefið 5467 stykki á sama tíma í fyrra. Munar heldur betur um hinar mögnuðu stórlaxagöngur í fyrra.

Miðfjarðará. Vikuveiðin var mjög góð, eða 213 laxar (321, 424, 256, 453, 298, 180 og 101). Magnað hvað áin heldur háum standard þar sem skilyrði hafa ekki verið auðveld og vatn minnkandi.  Fór í 2386 laxa á 10 stangir, en 3005 laxar höfðu komið á land á sama tíma í fyrra.

Þverá/Kjarrá. Vikan gaf 134 laxa (73, 81,74, 237, 345, 248 og 152). Þetta er besta vikan í nokkrar vikur og þess má geta að þar er enn að ganga nýr smálax. Minnkandi vatn og hitaviðri hafa samt sett mark sitt á ána. Alls voru komnir 1600 laxar á land á miðvikudagskvöldið, en á sama tíma í fyrra voru þó komnir 1567 laxar á land þannig að áin er enn yfir veiði sama tíma í fyrra þó að síðustu vikurnar hafi verið erfiðar. Munurinn er ekki marktækur, þetta er í raun sama og í fyrra. Þverá/Kjarrá er skráð með 14 stangir.

Eystri Rangá. Er í góðum gír eins og síðustu vikur. Vikan þar gaf nú 310 laxa (419, 334, 137, 56, 47, 66 og 22). Áin fór í 1401 lax, en sama tala í fyrra var 2627 laxar.

Blanda. Síðasta vika skilaði 112 löxum (145, 161, 168, 231,143 og 102), heildartalan því komin í 1331 lax. Þrátt fyrir þokkalegar vikutölur munar afar miklu á sama tíma í fyrra þegar, skv angling.is, voru komnir 2217 laxar á land. Blanda var skráð með 4 stangir framan af á angling.is, en nú er keyrt á öllum 14 stöngum árinnar.

Norðurá. Vikan gaf 74 laxa (53, 80, 129, 172,219, 184 og 158) Áin er vatnslítil og tíðarfar verið erfitt.  Norðurá þarf verulega á haustlægð að halda! Mikið af laxi, en tekur ekki. Alls voru á miðvikudaginn komnir 1302 laxar í bók. Í fyrra var sama tala 1130, sem sagt betra nú. Norðurá er skráð hjá angling.is með 12 stangir.

Langá. Vikan var sú slakasta um nokkurt skeið, aðeins 75 laxar (111, 90,142, 199, 201 og 170 vikurnar á undan) Heildartalan 1143 laxar og var á sama tíma í fyrra 963 laxar. Það stefnir því í betri vertíð þetta sumarið í Langá, haft er fyrir satt að þar sé mikið af fiski og ef að rignir fyrir vertíðarlok gæti orðið mikil og góð veisla. Langá er skráð með tíu stangir.

Haffjarðará. Vikan var sú slakasta um nokkurt skeið, gaf 68 laxa (104, 138, 123, 127,152 og 84). Áin fór í 980 laxa. Á sama tíma í fyrra voru komnir 1040 laxar á land. Þetta er því mjög áþekkt og í fyrra og áin er að nálgast fjögurra stafa tölu. Haffjarðará er skráð með 6 stangir.

Grímsá. Slakasta vikan þar í langan tíma, aðeins 56 laxar (101, 93, 91,142,128 og 112). Eins og sjá má af vikutölunum að undanförnu þá er þetta jöfn veiði, þangað til núna, en Grímsá hefur löngum haldið vatni betur en flestar ár í héraðinu og það skilar sér. Áin er nú komin í 844 laxa en sama tala í fyrra var 386 stk, Grímsá er því einn af sigurvegurunum þetta árið. Grímsá er skráð fyrir 8 stöngum.

Elliðaárnar. Veiðin dalar þarna enn milli vikna. Alls komu 36 laxar í vikunni (58,70,102, 130, 107 og 110). Þarna er rúm fyrir mikla bragarbót ef að skilyrðin batna. Heildartalan núna 741 lax en var 601 lax á sama tíma í fyrra. Elliðaárnar voru með fjórar stangir framan af,en sex stangir að undanförnu.

Laxá á Ásum. Er alveg í lagi og fiskur verið að ganga að undanförnu. Vikan gaf 89 laxa, svipað og síðustu vikurnar (101, 98,63, 133, 107, 79 og 31). Áin var í gærkvöldi með 726 laxa, en 490 laxar voru í bók á sama tíma í fyrra. Laxá er skráð með fjórar stangir.

Selá. Veiðin dalaði aftur milli vikna. Vikan nú gaf 67 laxa (93, 135, 123, 110, 95 og 27 í vikunum á undan). Heildartalan nú 685 laxar en var 670 á sama tíma í fyrra. Þetta er betra, en varla marktækt. Sex stangir í Selá.

Laxá í Aðaldal. Vikutalan hennar var 49 laxar(57, 70, 57, 146, 71 og 39), nokkrar sveiflur þarna á ferðinni en í heild heldur slakt. Í gær var áin í 550 löxum, en á sama tíma í fyrra höfðu veiðst 862 stykki.

Sæmundará
Hinrik kokkur, kallaður Hinni með 90 cm-plús hæng úr Sæmundará í Skagafirði. Mynd Steinþór Jónsson.

Norðlingafljót. Fljótið kemur nú inn í listann í fyrsta skipti, en áin hefur allt annað eðli en aðrar ár sem hér eru teknar fyrir. Alkunna er að ólaxgengt er í Fljótið, en hafbeitarlax úr Hafnará er fluttur í ána og veiddur á stöng. Vikutalan í Fljótinu var flott, 293 laxar (133, 55). Vaxandi og fín veiði. Norðlingafljót heldur vel vatni sínu.

Víðidalsá. Ekki sérlega gott í Víðidalnum, en þó aðeins skárra en vikuna á undan. Vikutalan var 60 laxar (38, 72, 57, 85, 82, 76 og 55) Heildartalan hennar nú 542 laxar en var 763 laxar í fyrra. 8 stangir skrifaðar á Víðidalsá.

Vatnsdalsá. Jöfn veiði en róleg og dalaði frá fyrri viku. Vikan gaf  40 laxa (55, 102, 52, 65, 42, 48 og 34). Áin færðist upp í 464 laxa. Sambærileg tala frá síðasta ári var 555 laxar. Sex stanga á.

Hofsá, Áin er mikið til á sama stað og í fyrra og síðari ár. Öldudalurinn varir og veiðin varla meira en kropp miðað við það sem menn vilja reikna með úr jafn frægri perlu. Vikan skilaði 55 löxum (67,93, 46, 59, 40 og 35). Alls þá komnir 395 laxar á 6 stangir, en sama tíma í fyrra hafði 370 löxum verið landað.

Laxá í Dölum. Tók aðeins við sér og skilaði bestu vikunni til þessa, 85 löxum (47, 38, 84, 33, 56 og 25). Besta vikan var þó með aðeins einum laxi meira en sú besta fram að því! Alls því núna 379 laxar, en sama tala í fyrra var 801 lax. Fjórar stangir í ánni.

Laxá í Leirársveit. Arfa léleg vika að baki, aðeins 11 laxar (31, 47, 80, 64, 61 og 54). Slæm skilyrði að herja á ána og veiðimenn hennar. Vantar rigningu. Mikla rigningu. Heildartalan 376 laxar en voru 286 á sama tíma í fyrra. Þrátt fyrir hremmingar er áin því engu að síður með betri tölu en í fyrra!

Skjálfandafljót. Hér er átt við neðri svæðin, en tölur af svæðunum hafa verið svo stopul til þessa að við höfum ekki haft ána með. Vikutalan hennar nú var  50 laxar miðað við 80 laxa í síðustu viku. Þar með hafa veiðst 370 laxar á svæðinu. Sambærilega tölu frá síðasta sumri er 350 laxar.

Hítará. Róleg vika í Hítará, en þó skárri en hörmungin þar vikuna á undan. Vikan nú gaf 45 laxa (17, 50, 67, 73, 49, 23 og 10).  Skilyrði verulega slök. Með þessu færðist hún upp í 353 laxa, en í fyrra var hún með 597 laxa á sama tíma. Fjórar stangir eru skráðar á Hítará.

Haukadalsá. Miðað við síðasta sumar þá er þetta mjög rólegt í Hauku og vikan var ekki lífleg, nánast eins og vikurnar tvær á undan, eða aðeins 38 laxar (36, 38, 54, 48, 33, 41 og 27).  Áin hefur gefið 331 lax. Á sama tíma í fyrra voru komnir 765 laxar úr ánni. Fimm stangir.

Flóka. Þar var aftur slök vika, aðeins 20 laxar (22, 17,22, 47, 51 og 83). Áin er komin í 320 laxa, en 263 laxar voru komnir á sama tíma í fyrra. Betra, þrátt fyrir dalandi vikuveiði. Þrjár stangir.

Stóra Laxá. Ekki var nú vikan alveg nógu góð austur í Hreppum þriðju vikuna í röð, aðeins 7 laxar (23, 15, 52, 10, 46 og 117). Þarna er sárlega beðið eftir góðum rigningargusum og með þeim haustgöngunum sem áin er fræg fyrir. Áin þá komin í 302 laxa. Á sömu dagsetningu í fyrra voru komnir 230 laxar á land. Enn státar Stóra því af betri tölu en á sama tíma í fyrra. Tíu stangir.

Jökla. Frekar jafnar vikurnar í Jöklu og greinilega þokkalegt lífsmark með ánni þó að hún sé lakari en í fyrra. Vikan gaf  53 laxa (60, 35, 50, 50, 18 og 12). Alls 278 laxar en í fyrra voru þetta 420 laxar á sama tíma.

Þverá í Fljótshlíð. Þar var aftur prýðis vika, alls 69 laxar (63 og 74 laxar í fyrri tveimur vikum, fleiri vikur ekki til staðar á angling.is). Áin fór þá í 252 laxa en var með 202 á sama tíma í fyrra.

Straumfjarðará. Verið frekar dauf hún Strauma og hélt áfram í sama mótinu. Þó var síðasta viku mun skárri en sú á undan. Vikan gaf 21 lax (9, 25, 44, 51, 16, 42 og 18). Hún er núna með 226 laxa á þrjár stangir en á sama tíma í fyrra höfðu veiðst 269 laxar.

Svalbarðsá. Önnur besta vika sumarsins þar að baki, 41 lax (16, 52, 31, 32 og 16 laxar). Áin þá komin í 212 laxa, en tala yfir ána frá sama tíma í fyrra er ekki finnanleg á angling.is.

Hrútafjarðará. Eftir flotta fyrri viku datt Hrúta aftur í dróma og gaf 22 laxa (93, 32,10, 45, 13). Áin þá komin með 177 laxa en var með 292 á sama tíma í fyrra.

Búðardalsá. Hefur ekki verið inni þar til í síðustu viku. Er þó með takmarkaður upplýsingar, en vikuveiðin í þeirri ágætu á var 23 laxar (20 og 21 lax(ar) í fyrri tveimur vikum). Áin fór þar með í 166 í sumar.

Ölfusá. Komin aftur inn, en ekki mikið af tölum þar samt sem áður. Vikan gaf 10 laxa sem er eina marktæka vikutalan sem við höfum. Áin þar með komin með 123 laxa en voru 237 á sama tíma í fyrra. Verið frekar slakt á þessum slóðum.

Svartá. Svartá ætlar að flýta sér hægt þetta árið. Vikan var þó sú besta til þessa án þess að um einhverjar fyrirmyndartölur væru á ferðinni. Vikan skilaði 25 löxum  (11, 15, 9, 17, 6 og 5) Veitt á fjórar stangir. Áin þá komin í 88 laxa en í fyrra höfðu  245 laxar veiðst á sama tíma.

Affall. Affallið er enn slakt í bili, enda er þar varla rennsli eftir þurrkana. Fiskur undir, en takan slök. Þar var vika upp á 24 laxa (26 laxar í fyrri viku). Heildarveiðin er nú 79 laxar, en 376 höfðu veiðst á sama tíma í fyrra.

Fnjóská. Slök sem fyrr. Eiginlega bara léleg, eða jafnvel ónýt, hvað sem veldur. Þegar 14 laxa vika og komið er fram í ágúst, er það lang besta til þessa, þá er eitthvað að. Þannig var fyrri vikan. Vikan nú gaf aðeins 12 laxa (14, 12, 4, 7, 6 og 7 laxar). Alls frá opnun 67 laxar en voru 157 á sama tíma í fyrra.

Breiðdalsá. Hvað er með Breiðdalsá? Enginn lax skráður yfir heila viku í fyrri viku. VoV man varla eftir annarri eins uppákomu öll þau ár sem við höfum ritað um og fylgst með veiðitölum. Vikan nú gaf 2 laxa skv angling.is.(0,10, 10, 8 og 12).  Veitt á sex stangir. Alls komnir 55 laxar á land, en á sama tíma í fyrra voru  188 laxar komnir á land og þótti slakt.