Þegar við tókum síðast saman vikutölurnar hjá angling.is og bárum saman við aðrar og reiknuðum út vikutölur, vantaði nokkrar mikilvægar ár þar sem tölur voru ekki komnar. Hér koma útreikningar þeirra….

Hofsá, Strengur, Haraldur Þórðarson
Stórglæsilegur 103 cm lax úr Hofsá í vikunni og ekki hægt að segja annað en að veiðimaðurinn Haraldur Þórðarson kunni að pósa! Myndin er af FB síðu Strengs

Þetta voru Elliðaárnar, Langá, Laxá í Leirársveit, Selá, Hofsá og Laugardalsá. Til þessa hefur vantað talsvert uppá að nægilega margar ár séu að halda í við sjálfar sig frá í fyrra og þó að stígandi hafi víða verið reyndust flestar árnar vera með lakari heildartölu en á sama tíma í fyrra. Jæja, það bættust þrjár við á góða endanum að þessu sinni því Elliðaárnar, Langá, og Laxá í Leirársveit eru allar komnar með hærri tölu en á sama tíma í fyrra og Selá alveg við það að ná í skottið á sjálfri sér. Sérlega gaman að sjá þegar statistíkin er skoðuð, að Selá tók góðan kipp. En skoðum:

Elliðaárnar. Vikan gaf  107 laxa, jafnt og gott því vikan þar á undan var með 110 laxa. Áin þá komin í 345 laxa, en talan á sama tíma í fyrra var 309 laxar. Mikið er af laxi í ánni, gott vatn og fiskur enn að ganga. Það stefnir því í gott sumar í ánum.

Langá. Aldeilis fínn gangur þar, vikan með 201 lax, vikan þar á undan 170 stykki, veiðin var því vaxandi og fínar göngur enn að skila sér. Þar með var Langá komin í 532 laxa en sambærileg tala í fyrra var 471 lax.

Selá. Þar hefur veiðin glæðst umtalsvert, vikan gaf 95 laxa, vikan á undan 27 laxa þannig að uppsveiflan er umtalsverð og gleðileg. Heildartalan þá orðin 157 laxar en var 161 lax á sama tíma í fyrra.

Laxá í Leirársveit. Það er fremur rólegt í Laxá, vikan þar með 61 lax og vikan þar á undan með 54 laxa. Áin þar með komin í 143 laxa, en á sama tíma í fyrra var staðan 139 laxar. Meira nú en þá! En að vísu aðeins 4 laxa munur.

Hofsá. Þar er enn rólegt, vikan gaf 40 laxa, vikan á undan 35 laxa. Samtals 75 laxa en þeir voru 90 talsins á sama tíma í fyrra.

Laugardalsá. Þar er einnig mjög rólegt enn sem komið er, vikan með 10 laxa en 13 í vikunni á undan. Alls 33 laxar. Það vantar tölu frá sama tíma í fyrra í færslur á angling.is  þannig að við vitum lítt hvort þetta er betra eða lakara nú en þá.