Af stórum löxum

Jón Kristinsson með þann stærsta í sumar, 107,8 cm!

Nú fyrir skemmstu landaði Jón Kristinsson stærsta laxi sumarsins og var vettvangurinn Bergsnös í Stóru Laxá í Hreppum sem hefur verið afburðargóð í sumar. Einhvers staðar stendur að laxinn hafi verið 108 cm en Finnur Harðarsson leigutaki og landeigandi hefur leiðrétt það og sagt laxinn vandlega mældan 107,8 cm.

Þessi 0,2 cm breyta því ekki að þetta er sá stærsti í sumar, hefur þarna ca sentimeter umfram einn sem Nils Folmer Jörgensen landaði í Laxá í Aðaldal og var mældur 107 cm. Það er samt sem áður gaman að hugsa til þess hvað þessir höfðingjar voru langir þegar þeir gengu ferskir í ána, því eins og kunnugut er þá lengjast þeir með því að neðri skolturinn  gengur fram og krókurinn mikli verður æ stærri. Getur það hlaupið á fáeinum sentimetrum.

Nils með þann næst stærsta, 107 cm.

En laxar af þessari stærð eru óalgengir á Íslandi, þessir hefðbundnu 100 cm/20 pund verða sjaldan stærri en 104-105 cm. Sporðaköst, veiðifréttaveita mbl.is, hefur haldið lista yfir 100 cm plús síðan 2022. Það er ágætis heimild um stórlaxa, því gerð er sú krafa að fregnum af slíkum höfðingjum fylgi myndir, mælingar og vitnisburðir. Hægt er að skoða þessa stórlaxaskrá í Sporðaköstum undir hnappnum „hundraðkallar“ og er þar e.t.v. upprunin sú skrýtna hugmynd að tala þannig um þessa laxa, að kalla þá „hundraðkalla“. En sitt sýnist hverjum með það. En í stórlaxaskráningu Sporðakasta má sjá að 2024 landaði Berglind Ólafsdóttir 111 cm laxi í Svartá á fluguna Von, sem er ein af gersemum Sigga Haugs. Sumarið 2023 landar Grímur Árnason 118 cm laxi á Tannastaðatanga í Soginu á Black Ghost og sama sumar er Gísli Vilhjálmsson með 110 cm bolta úr Blöndu.

Aftur til ársins 2022 eru ekki fleiri laxar sem ná því að verða 107 cm eða stærri. Hér á landi eru þó til margar mergjaðar og nánast furðusögur um glímur við ægilega laxa sem höfðu betur, oftar en ekki má rekja slíkar sögur til Laxár í Aðaldal og ekki að undra að tröllin sigri þar svo oft því áin er afar krefjandi fyrir veiðimenn og að sama skapi fínasti vígvöllur fyrir risalax sem hefur álpast á fluguna.

Hér er Marinó með ferlíkið úr Bakkaá.

En þeir allra stærstu. Það eru Grímseyjarlaxinn, Eldeyjarlaxinn, 40 punda tröll sem voru kanski ekki einu sinni úr íslenskum ám. Veiddir í sjó. Sá allra stærsti veiddist nú samt í íslenskri á og ekki í einni af „þeim stóru“, heldur sprænunni Bakkaá í Bakkaflóa. Laxinn veiddi Marinó Jónsson á spón 26.júní 1992, eða fyrir 34 árum. Þessi ótrúlegi lax var 130 cm og um 43 pund. Hefði verið enn þyngri ef hann hefði ekki verið hoplax sem hafði gengið silfraður sumarið áður. Og var þá að ganga inn til hrygningar í þriðja sinn. Og var enn á lífi á leið til hafs og hver veit nema að hann hefði komið aftur til fjórðu hrygningar ef Marinó hefði ekki þarna  leið um með bensínstöðvarstöngina sína með von í brjóst að setja í 2-3 bleikjur í soðið?