Eyjafjarðará hefur löngum verið helsti dvalarstaður stórra sjóbleikja, hálfgert elliheimili. Í dag var þar dregin á land, að margra mati, sú stærsta sem dreginn hefur verið þar á land og er þá mikið sagt.
Við vitnum hér í vef Eyjafjarðarár sem birtir myndina sem við fengum hé rað láni: „Í dag veiddi Aron Sigurþórsson stærstu bleikju sem veiðst hefur í Eyjafjarðará svo vitað sé. Við bara fullyrðum það. Þessi risastóri hængur mældist 76cm, vigtaði 11,5 pund og átti heima á svæði 5. Hann tók Krókinn eftir Gylfa Kristjáns. Við óskum Aron til hamingju með þennan geggjaða fisk!“
Í framhaldi af þessi spunnust umræður á FB síðunni og mátti þar meðal annars lesa komment frá Guðmundi Geir Hannessyni sem sagði: „Veit um aðra jafn langa sem er upp á vegg hjá Nick Cariglia. 1 Ágúst 1998. Svæði 5.“ Þessu svarar admin FB síðunar að hann þekki til þeirrar bleikju, en þessi sé mun sverrari og augljóslega miklu þyngri.
Síðan er markvert komment frá Högna Harðarsyni sem segir: „Geggjuð bleikja! Velti því samt fyrir mér að þann 6. ágúst 2018 var skráð 77 cm bleikja sem fékkst á Ármót/Jökull. Þann 13. júlí 2019 er skráð 76 cm bleikja tekinn á Hrísum og svo er skráð önnur 76 cm bleikja þann 8. ágúst 2020 sem fékkst neðan við Arnarstaði. Eru ekki rök fyrir þessum skráningum, fyrst þessi bleikja hér að ofan er sögð sú stærsta úr ánni?“
Þessu svarar admin: „Þetta er sú stærsta svo vitað sé, skjalfest, við bara fullyrðum það“. Til hamingju sem sagt Aron með metfiskinn og óhætt að segja að þetta sé ferleg bleikja. Það er sjaldgæft að sjóbleikjur nái svona stærð og hljóta þær að vera orðnar afgamlar. Við höfum heyrt af 10 punda fiskum úr Hafralónsá og Hrútafjarðará, auk Eyjafjarðarár að sjálfsögðu. En fátítt er það. Gaman að svona fréttum.










