Hvað gerir „seinni bylgjan“?

98 cm úr Stóru Laxá. Hnupluðum þessari mynd af FB síðu Finns Harðarssonar.

Það er von að menn rýni í nýjustu veiðitölur og fréttir af göngum að undanförnu, enda fór vertíðin afar rólega af stað og virtist engu betri en í slappleikanum í fyrra. En svo rættist úr. Nú er spurning hvert framhaldið verður. Við rýndum í nokkrar ár.

Við getum byrjað á því að kíkja í Elliðaárnar sem áttu afar góða viku svo sem greint var frá í tölum angling.is s.l. fimmtudag. Göngurnar búnar að vera óhemju sprækar. Þegar VoV birti frétt af þeim vikutölum, skaut Ásgeir Heiðar, sá kunni snillingur, inn kommenti á FB síðu VoV, sólarhringur eða kannski rúmur síðan, og sagði: „Vesturlandið er búið að vera með þær bestu veiðiaðstæður sem hægt er að fá. Segir samt lítið um laxafjölda. Teljarinn í Elliðaánum segir okkur á endanum söguna, en þar virðist seinni straumurinn ekki vera að skila miklu. Enn vantar ca 1000 uppá tölu síðasta árs.“

Svo mörg voru þau orð og án þess að vilja vera leiðinlegi gaurinn þá nefndi VoV í sömu frétt að mörg sumur hafa skilað líflegum göngum um mitt sumar og svo lítið sem ekkert meir. Önnur sumur hafa verið öðru vísi, en nú reynir á hvernig þetta skrýta sumar fer.

Kíkjum á Langá, sem var slök í fyrra. Hún náði 75 laxa viku á dögunum og færðist þá upp í 157 laxa, sem er ekki nema 34 löxum meira en á sama tíma í fyrra. Nú í byrjun viku lét Ingvi Hrafn Jónsson frá sér eftirfarandi á FB síðu sinni: „Langá full af vatni og bullandi laxagöngur minna â gömlu góðu dagana,sennilega langleiðina í 3000 laxar gengnir og 200 það sem af er degi“. Sagt í gær. VoV myndi nú segja, næsta vikutala er jafnvel enn meira spennandi en sú sem síðast kom. 3000 laxar gengnir miðar sjálfsagt Ingvi við teljarann í Skuggafossi og þá áætlun sem menn hafa dregið upp, einhverja prósentu, sem hoppar bara upp fossinn í stað þess að nota stigann. Það er því gott að Ingvi sagði „sennilega“ því erfitt myndi vera að áætla hvað kemst af laxi beint upp fossinn eins mikið og vatnið hefur verið að undanförnu. En það er líflegt og það er gott. Megi það lengi vara.

Einn af mörgum síðustu daga í Blöndu. Myndin er fengin af FB síðu Fish Partner.

Hvað næst? Blanda?! Búin að að hrapa eins og loftlaus blaðra síðustu sumur, 410 2021, 577 2022, 359 2023, 327 2024, allt slakar tölur á mælikvarða Blöndu, en svo búmm í fyrra, heildarveiðin 54 laxar. Botninum svo að segja náð. Nýir leigutakar, Fish Partner, tóku við fullir bjartsýni og til að baktryggja sig efndu þeir til frábærrar hugmyndar að fjárfesta í fljótabátum og láta þá reka niður ána með veiðimenn innanborðs. Kastandi út og suður, bak við alla steina, yfir allar breiður og að öllum bökkum. Í ljós kom í fyrra að Blanda er fanta góð silungsveiðiá, gefur bæði staðbundna og sjógengna urriða og bleikjur og svo var einnig efnt til ósaveiða fyrir silung. Þetta heppnaðist vonum framar og áfram skyldi haldið í sumar. En, eftir marga laxlausa daga í opnun, fór sá silfraði allt í einu að sýna sig. Vikuveiðin á dögunum 51 lax og áin komin þar með í 123 laxa, 69 löxum meira en allt síðasta sumar. Óskandi að þessi þróun haldi áfram. Og auðvitað má bæta við þennan afla haug af stórsilungi.

Þverá/Kjarrá? Tvær síðustu vikurnar þar með 663 laxa og áin löngu síðan komin í fjögura stafa tölu. Þarna er toppáin til þessa. Mikið vatn, stundum skolað, en aðstæður flottar og mikið af fiski að ganga. Veiðin eftir því. Það væri gaman ef að við hefðum 15.júlí tölu frá 2005, þegar metveiði fékkst í ánni, 4165 laxar. Þá gekk bæði geysimikill lax í ána og göngur stóðu vel fram á haust. Ritstjóri, ásamt Einari Fal ljósmyndara m.m. ,vorum þar t.d. í hundrað laxa holli við vetraraðstæður í lok ágúst. Áin tvöföld, skoluð og éljagangur. Samt var mok. En förum ekki fram úr okkur. Það er mikið eftir. Einmitt það er mikið eftir og mikið sem getur gerst á þeim tíma.

Glæsileg hrygna úr Jöklu. Myndin fengin af FB síðu Strengja

Jökla. Þar voru væntingarnar all svakalegar, en byrjunin drukknaði í flóðrigningum og stóð það ástand í all nokkra daga. Loks fór að sljákka í ánni og strax að veiðast. En þá skall á hitabylgja sem stendur eiginlega enn og hitinn/sólin bakaði jökla og skafla til fjalla. Enn urðu vatnavextir og krefjandi aðstæður. En samt sem áður, þrátt fyrir þetta mótlæti var Jökla með 188 laxa landaða á dögunum á móti 146 á sama tíma í fyrra. Þá gekk svo vel framan af að það stefndi allt eins í metveiði. En yfirfallið stoppaði það snemma í ágúst. Núna gæti svo farið að yfirfallið komi ekki fyrr en seint í haust, ef það kemur þá yfirleitt. Þannig að það verður vert að fylgjast vel með Jöklu í sumar.

Loks Stóra Laxá í Hreppum, 14.7 var hún gefin upp með 157 laxa eftir 98 laxa viku. Er í dag komin yfir 200 stykki.  Það er nú bara helv.. gott og samkvæmt upplýsingum sem Finnur Harðarson gaf á FB síðu sinn, er áin 50 prósent yfir veiðinni á sama tíma í fyrra. Má kannski að einhverju leyti þakka vætutíðinni. Fiskur þá síður að stoppa og bíða eftir heppilegu vatni niðri á Iðu. Veður þess í stað bara strax upp.

Það er sem sagt það sem gætum kallað „seinni bylgjuna“ sem sker úr um hverslags veiðisumar þetta verður. Er sjórinn að tæma sig af laxi bara núna þessa daganna, eða halda göngur áfram lengra inn í sumarið? Þegar stórt er spurt.