20plús, minnkandi vatn og víða afleitar tölur

Doddi með tröllið úr Laxahyl, sem stóð undir nafni eins og oft áður. Mynd er frá Hreggnasa.

Það er nú eitt og annað að frétta af bökkum vatnanna, vaxandi straumur og eitthvað að ganga af „bjargvættinum“, fyrsti metersplús laxinn kominn á þurrt og í blautt aftur. Og Jökla hefur tekið hamskiptum til betri vegar og þar er lax að ganga af krafti og allt í lukkunar velstandi.

Hvað varðar „bjargvættinn“ þá hefur hann verið að sýna sig og i minni okkar er næsti stærsti straumur um miðjan mánuð. Staða strauma hefur verið heldur óheppileg í sumar, sem sagt stóru straumarnir seinni en stundum áður og þar sem bjartsýnisstuðull veiðimanna mælist af stórstreymi, þá hefur biðin eftir þeim næsta stóra verið óþægilega löng. En samhliða vaxandi straumi er það staðreynd að víða á landinu hefur ekki rignt að ráði í all nokkurn tíma og höfum við heyrt hvíslað hinni hræðilegu setningu að undanförnu: „Minnkandi vatn“.

En þó að laxavertíðin hafi farið seint of frekar illa af stað þá er samt allt löðrandi í veiðisögum, litlum og stórum, því hver fiskur er ævintýri og því stærra og meira, því færri sem fiskarnir eru. En „Doddi“, sem við erum nokkuð vissir um að sé Þórður Júlíusson veiddi þann fyrsta sem við höfum frétt af sem var yfir meterinn. Hreggnasi, leigutaki Svalbarðsár, birti mynd af „Dodda“ á FB síðu sinni í dag með 103 cm glæsihæng sem hann setti í og landaði í Laxahyl. Upplýsingar um þann stærsta sem við höfðum heyrt af fram að því fundum við á FB síðu tengdri leigutaka Stóru Laxár, 98 cm var sá fiskur. Báðir þeir stóru hængar.

En almennt hefur verið talað um að vertíðin hafi farið betur af stað norðanlands en Vestan- og Suðvestan. .Við getum skoðað því til stuðnings, að miðað við 1.júlí hafði Þverá/Kjarrá skilað 94 löxum á land, en 211 um líkt leyti í fyrra. Og Norðurá 72 löxum miðað við 150 í fyrra. Ástæðan fyrir því að við nefnum þessar, er sú að um mánaðamótin voru þær með hæstu tölurnar yfir landið. En „listinn“ mun eflaust breytast hratt þegar „bjargvætturinn“ fer að stympla sig inn og árnar sem voru opnaðar langt á eftir öðrum jafna dæmið út.

Og í þessum pælingum er eftirtektarvert að laxveiðin virðist fara vægt til orða tekið illa af stað í Rangárþingi, en miðað við mánaðamótin höfðu aðeins 4 verið skráðir úr Ytri Rangá og aðrar ár á svæðinu með veiðiuppistöðu úr gönguseiðasleppingum ekki komnar á blað. Á sama tíma í fyrra var þó Eystri komin með 113 laxa og Ytri 102. Fróðlegt verður því að fylgjast með gangi mála, hvort að veiðin skerpist eitthvað á næstunni eða að menn fara að veelta fyrir sér hvort að seiðasleppingarnar hafi farið verulega úrskeiðis