Eitthvað að hnikast á Vesturlandinu?

Glæsilegur boltafiskur úr Brennunni hjá Agli Ástráðssyni og frú. Myndin er frá Störum.

Almennt hefur laxveiðiin farið rólega af stað, lítið af stórlaxi…og almennt séð er þetta lakara en í fyrra sem var aldeilis ekki gott. En flestir eru á því að vestanvert Norðurlandið, sem var einstaklega lélegt í fyrra, sé nú líflegasti landshlutinn. En eitthvað gæti verið að hreyfast á Vesturlandinu.

Arngrímur Egill Gunnarsson með þann fyrsta úr Laxá í Dölum, 78 cm úr Neðri Kistu. Myndin er frá Hreggnasa.

Laxá í Dölum opnaði. Höfum ekki töluna, en þar var líf. En talandi um að eitthvað kunni að vera í farvatninu, sagði Ingólfur Ásgeirsson leigutaki Þverár/Kjarrár, Brennu og Strauma okkur frá veiðifólki sem var í Brennunni, rignt hafði og menn fundu fyrir að góð ganga hefði komið. Eftirmiðdag og kvöld komu átta á land og er menn mættu glóðvolgir og yfirspenntir klukkan sjö morguninn eftir, var gripið í tómt. Enginn varð var og ekkert sást til laxa. Allt saman gengið uppúr. Þverá/Kjarrá skar sig nokkuð úr þarna fyrir vestan að því leyti að annað holl eftir opnun var ekki tregt, heldur veiddist áfram vel uns norðanbálið gerði allt saman nánast óveiðandi í nær þrjá sólarhringa. Ingólfur sagði okkur líka að nýjasta áin hans, Flóka, hefði opnað með bændadögum þar sem tveir laxar komu á land. „Það hefur sést lax um nánast alla á og bara bjart fram undan,“ sagði Ingó og bætti við að viðgerð væri í gangi á gömlum „manngerðum“ laxastiga í ánni. „Hann var orðinn fremur þungur, en nú mun laxinn renna upp án átaka,“ bætti Ingó við.

Og talandi um lagfæringar á stigum. VoV ræddi einnig við Einar Óla Pedersen formann Veiðifélags Langár og sagði hann okkur að unnið væri að viðgerð á stiganum í Sveðjufossi. „Þetta er nú 65 ára gömul smíð og farin að láta nokkuð á sjá. Við erum auk þess að fá í stigann nýjan teljara með myndavél og mælitækni, svona eins og sjá má víða. Annars hefur veiðin verið fremur dræm það sem af er í Langá, enda áin ekki þekkt fyrir stórlaxa. Hún er smálaxaá og gaman að segja frá því að í gær fóru 14 smálaxar um teljarann í Langárfossi. Það þýðir að ekki vantar laxinn því hann rennur ekki allur upp, heldur safnast alltaf talsvert upp á Breiðunni og í Strengjunum þar fyrir neðan. En þetta er eitthvað og gefur góð fyrirheit,“ sagði Einar Óli.