Leiðindaveður og lítill afli

Sá fyrsti úr Grímsá 2026. Myndin er fengin hjá Hreggnasa.

Það var eitthvað um opnanir í dag, en ekki fréttir af stórum eða miklum aflabrögðum. Lítið virðist vera af stórlaxi eins og spáð hafði verið og svo var vægt til orða tekið leiðindaveður á veiðislóðum.

Grímsá opnaði t.d. í morgun en fyrsta vakt gaf ekki fisk. Norðan skítviðri setti mark sitt á viðburðinn. Skv upplýsingum frá leigutakanum Hreggnasa var björninn unninn á seinni vaktinni er 79 cm hrygna veiddist á Stórlaxaflöt, sem er ofan Laxfoss, beint fram af veiðihúsinu. Tók fluguna Valbein sem er hugarfóstur Reiðu Andarinnar. Einn slapp í Oddsstaðafljóti, einum af efstu veiðistöðum árinnar, og laxar sáust á nokkrum hefðbundnum vorstöðum, eins og í Laxfossi og Þingnesstrengjum. Myndin sem við fengum að láni hjá Hreggnasa sýnir illa farinn sporð, en laxinn mun hafa verið illa selbitinn að auki þó að það sjáist ekki á myndinni.

Auk þess opnaði Hítará og einn kom þar á land. Eitthvað svipað í Haffjarðará og fyrsti laxinn kom á land úr Laxá í Kjós, sem hafði „núllað“ í opnun.