Laxveiðin er að fara í gang, en víkjum aðeins frá því og skoðum þær fréttir sem borist hafa frá Hlíðarvatni í Selvogi síðustu daga og vikur. Ætla má að ekki sé þar allt með felldu, en það gæti auðvitað ræst úr.
Hlíðarvatnið er eitt geggjaðasta silungsvatn landsins og vinsælt samkvæmt því. Aðalfiskurinn þar er bleikjan, aðrar tegundir sjást þar aðeins í mýflugumynd. Mýflugumynd…einmitt. Fregnir sem berast frá vatninu í vor eru þess eðlis að menn hafa lítið orðið varir við flugnaklak. Vatnsstaða er lág og veiði lítil. Menn eru annað hvort að fá fáa fiska, eða enga. Og þeir sem hafa fengið bleikjur eru gjarnan að ná að landi stórum kusum, 50-55 cm, sem eru gamlir fiskar.
Vatnið er opið fyrir vindáttum og ekki alltaf auðvelt að bera sig að á bökkum þess, en hver reynsluboltinn af öðrum hefur skráð á heimasíður á FB og víðar, lítil veiði eða engin. Menn vona það besta, en tíminn verður að skera úr um hvernig fer.










