
Sporðaköstin greindu frá rosalegum sjóbirtingi sem veiddist í Vatnsá í fyrrahaust en flaug undir radarinn. Án efa sá stærsti í fyrra og með þeim stærstu fluguveiddum hér á landi alla tíð. 103 cm! Af þeim fiski er nánari frásögn í nýútkomnu veiðiblaði Veiðihornsins.
Í fréttinni er greint frá því að Maros Zatco hafi veitt þennan fisk. Sérstaklega hefur verið hlúð að birtingi í Heiðardal og stórir og smáir fiskar veiðast bæði í Vatnsá og Heiðarvatni. Ekki hvað síst í vatninu. Tvær myndir birtu Sporðaköst þar sem Maros sýnir fenginn og stungum við einni í vasann og birtum hér. Hún sýnir að vísu aðeins tæplega hálfan fiskinn, en það dugar eiginlega. Sverleikinn er ógurlegur. Í laxakvarðanum er 100 cm lax áætlaður 20 pundari og 103 cm eitthvað í námunda við 22 pundin.Það hefur löngum verið vel þekkt staðreynd að laxakvarðinn á ekki við um sjóbirting. Fyrir hvern sentimeter eru þeir miklu þyngri en laxar og ekki er óvarlegt að giska á að þetta hafi verið 30 pundari, jafnvel 30plús.
En svoleiðis vangaveltur ætlum við ekki nánar út í, heldur í tilefni af þessum svakalega fiski, að rifja upp viðtal sem VoV tók við Jóhannes Sturlaugsson fiskifræðing hjá Laxfiskum árið 2006, eða fyrir tuttugu árum! Þá var eitt af járnum Jóhannesar í eldinum að rannsaka sjóbirting í Tungulæk. Eftir veiðitíma dró hann á Breiðuna, efst í ánni, sem jafnan er stöppuð af fiski. Hann sagði okkur frá tveimur hrygnum sem vöktu sérstaka athygli hans haustið 2005. Þetta voru stórir birtingar, sá yngri 80,3 cm og áætlaður 5-6 kg og sá eldri 86,3 cm, áætlaður 7-8 kg.
Lífshlaup þeirra var spennandi. Yngri og smærri hrygnan fór fyrst til sjávar þriggja ára gömul og eftir fjórðu ferðina, þá sex ára, hrygndi hún fyrst og síðan á hverju hausti. Eldri og stærri hrygnan fór ekki til sjávar fyrr en hún var fimm ára. Eftir þrjár ferðir, þá átta ára, hrygndi hún fyrst og síðan, eins og hin, á hverju ári þar eftir. Og haustið skilaði hún sér enn á ný, þá orðin 15 ára, 90 cm og að hrygna í áttunda skiptið. Það var nú alltaf vitað að sjóbirtingur lifði lengur og hrygndi oftar en lax, en þetta er eigi að síður magnaðar tölur.
Og þá má fara út í vangavelturnar. Hversu gamall er 103 cm hængur? Hvað hefur hann oft tekið þátt í hrygningu. Nú, eða 107 cm hængur úr Búrhyl í Tungufljóti tveimur haustum áður. Eða 23 punda hrygnan sem Haraldur Eiríksson veiddi að vori í Tungulæk. Hrognalaus hrygna að vori? 23 pund. Birtingar sem ná 100 cm eða meira eru afar sjaldgæfir, en þeirra hefur orðið meira vart hin seinni ár og má eflaust tengja það við V&S fyrirkommulagið, þ.e.a.s. öllum fiski er sleppt. 80 cm drepinn birtingur verður aldrei 100 cm o.s.frv. Þetta eru vangaveltur sem vekja spurningar sem gaman væri að fá svör við. En til þess þurfa þeir heppnu kappar sem landa slíkum fiskum, að hirða af þeim hreistur og koma í hendur sérfræðinga Hafró. Við fáum kannski svör á nýhafinni vertíð.









