Allur gangur á gangi mála!

Frábært eintak úr Minnivallalæk, myndin er frá Strengjum.

Dagur 2. Dagur 1 var eins og búast mátti við. agalegt framan af, en hlýnaði þegar á daginn leið og hvert hitastig skiptir máli. Sums staðar glæddist, annars staðar sat allt fast í klaka.

Geirlandsá kom til og drónamyndir hjá mbl.is eru geggjaðar. En þær sýna líka styggðina á sjóbirtingstorfunni í Ármótunum. Ekki að undra að umræða hefur verið í gangi að banna dróna á veiðislóð. En á meðan að fiskurinn fékk frið þá var flott veiði og tugir fiska vöru dregnir uppúr og settir aftur út í. Flott byrjun þar sem sagt, hins vegar spyr maður sig með dróna í Ármótum Geirlandsár. Um árabil vita allir sem þar koma hvar fiskurinn er. En hvað um það.
Glæsilegur urriði úr Minnivallalæk. Mynd frá Strengjum.
Þrösturinn sagði okkur þetta um opnun Minnivallalækjar: „Opnunardagur Minnivallalækjar gaf 10 fiska í dag þrátt fyrir erfiðar aðstæður! Það náðust 10 fiskar á land og flestir á efstu veiðistöðunum, Húsabreiðu,Stöðvarhyl og Brúarstrengjum. Það var pheasant tail sem gaf best og þurfti að fara niður til að fá þá til að taka. Þó voru fiskar að rísa í Brúarstrengjum þrátt fyrir kuldann svo einhver hreyfing er þó á þeim. Stærsti fiskurinn var 62 cm og svo aðrir smærri svo engin „monster“ komin enn þá, en einhverjir slitu sem voru stærri enda þurfti að nota mjög granna tauma til að hann tæki.“
Vetrarlegt fyrir Austan…myndin er frá Eldvatni, myndina fengum við hjá Jóni Hrafni leigutaka.
Við heyrðum einnig í Jóni Hrafni Karlssyni leigutaka Eldvatns. Við birtum hér fremur kaldranalega mynd sem hann tók á degi 2, en hann sagði um opnunina: „7 á land í gær stærstur 85cm . Komnir 4 í dag held ég“. Síðan fréttum við að „nokkrir“ hefðu veist á fyrstu tveimur dögunum á eystri bakka Hólsár….einnig á vesturbakkanum.
Einn flottur af Eystri bakka Hólsár, minnir aðeins meira á staðbundinn urriða en sjógenginn, en allt um það…myndin er frá Kolskeggi.
Lítið að frétta vötnum, víða enn klaki og frostið ekki farið þó að heita eigi að komið sé voru og fyrstu farfuglarnir komnir. Við höldum áfram að fylgjast með og hvetjum aftur veiðimenn að senda okkur myndir og fréttastubba, ritstjorn@votnogveidi.is