Við skelltum inn texta fyrir skemmstu þar sem við dæmdum upphaf laxveiðinar nokkuð góða. Nú hafa nokkrar ár til viðbótar opnað og óhætt að breyta lítillega um tón og tala frekar um misllita byrjun.

Eftir flotta byrjun í Þverá, þá bestu síðan 2016 að mati kunnugra þá dró úr öllu saman eins og oft gerist næstu daga eftir opnanir. Heyrðum í veiðimann þar í gærmorgun, tveir komnir á land, heiður himinn og 20 stiga hiti. Kjarrá opnaði líka og þar komu strax sem laxar og menn að sjá lax þar víða sem og í Þveránni. Á sama tíma opnuðu bæði Laxá í Kjós og Miðfjarðará og það er ekki oft að þær núlli á fyrstu vakt. En gerðu það nú samt. Miðfjarðará skilaði samt þremur á kvöldvakt en Kjósin ekki. Þar var að mati manna afleit skilyrði. Stífur og kaldur vestanstrengur upp dalinn, sem er foráttuslæmt veiðivefur bæði í Kjós og víðar. Þá er minnkandi vatn og það er komin dálítill uggur í marga um að hvort sem að skili sér góðar laxagöngur eður ei, þá myndi þurrkasumar fara illa með allar tölur. Snjór að mestu farinn og regntíð stopul og langt á milli. Bæði í Kjósinni og Miðfjarðará hafa menn séð til laxaferða og það er því engin örvænting í gangi. Bara óvenjulegt að ekkert veiðist á fyrstu vöktum.En allt kemur þetta í ljós.


Það styttist í fleiri ár, t.d. Elliðaárnar. Þar kíkti VoV í dag og sjá, tveir komnir upp fyrir Árbæjarstíflu. Náðum lélegri mynd af þeim. Annar stór, hinn lítill. Í Sjávarfossi gryllti í sporðinn á öðrum, sem og í rásinni beint niður af teljarastútnum. Þannig að hann er að ganga í Bæjarlækinn. Þá hafa einnig borist fregnir af vatnaskilasvæðum á borð við Straumana. Þar veiddist lítið fyrstu tvær vikurnar, en hefur glæðst þar verulega allra síðustu daga og ekki bara laxar að veiðast, fallegir sjóbirtingar að auki. Kannski ívið snemma á ferð en ævinlega velkomnir.










