Það er alltaf gaman að minna á að það fleira fiskur en lax. Nú tröllríða laxafréttir öllu saman því að loksins er komið gott sumar eftir mörg mögur. Þökk sé smálaxinum. En einmitt síðustu árin hafa silungsveiðar dregið vagninn og vert að minna á það.
Hlíðarvatn hefur t.d. verið gjöfult á köflum og þar geta fiskar verið afar vænir, eins og t.d. þessi bleikja sem við stálum mynd af á FB síðu Hlíðarvatns. Steingerður Steinþórsdóttir landaði þessu trölli, 60 cm og eflaust nálægt 6 pundum, ef ekki meira. Hún fékk fiskinn á Lippu og við heyrðum af annarri 60 cm sem kom á Krókinn…en það skemmtilega við þetta var að bæði þessi tröll komu úr Fóellutjörn, sem hugsast gæti að væri dvalarheimili aldraðra í Hlíðarvatni. Fóella er gamalt nafn á öndinni Hávellu. Kannski var hún einu sinni einkennisfugl á þessum stað, en í mörg ár hefur hávellan verið hálendisfugl.
En hvað um það, 60cm og stærri og aðeins smærri hafa veiðst víða, Fnjóská, Eyjafjarðará, Kolku, Hrútu og víðar….










