Sjóbirtingurinn hefur til þessa verið helsti fiskur Suðurausturlands og að einhverju leyti líka í nokkrum ám á vestanverðu landinu. Norðan heiða vitum við af Húseyjarkvísl og Litluá, en nú er „ný“ á að detta inn sem ein sú öflugasta.
Og það er Eyjafjarðará. Ný og ekki ný. Hún hefur um árabil verið líklega besta sjóbleikjuá landsins, en fyrir all nokkrum árum tók hún að dala sem slík. Ofveiði pottþétt með óhóflegum andstreymisveiðum plús loftslagsbreytingarnar sem eru bleikjunni ekki í hag. Áin fór í gjörgæslu og var friðuð um tíma. Bleikjuveiðin tók við sér smátt og smátt en hún er ekki sama magnveiðiáin og fyrrum, frekar…gefur færri og stærri. En um leið og bleikjan gaf eftir, fór urriðinn að sækja í sig veðið eins og hann hefur víða gert. Síðustu árin hefur sjóbirtingur gert sig æ meira gildandi og nú er svo komið að áin er jafnvel á pari við þær bestu hér á landi. Og það eru bestu árnar í heimi hér. Þær eru betri heldur en í Patagoniu vegna þess að hér á landi er urriðinn heimastofn, ekki aðfluttur eins í Suður Ameríu. Ekki sagt til að gera lítið úr þeim ágæta fiski sem er nú aðlagaður og villtur og glæsilegur. En til marks um hvað Eyjafjarðará hefur upp á að bjóða, þá má lesa þetta af FB síðu umsjónarmanna árinnar:
„Það eru rosalegir birtingar á sveimi um neðri svæðum Eyjafjarðarár þessi dægrin. Ingvar Hauksson og félagar duttu heldur betur í lukkupottinn um daginn en þeir lönduðu ma. fiskum frá 65cm upp í 90cm+ tröll sem fékkst á svæði II! Birtingarnir voru að taka bæði púpur og straumflugur af ýmsu tagi. Það er gaman að segja frá því að Ingvar, sem er búsettur erlendis, heimsækir Ísland árlega til þess að veiða sjóbirting í Eyjafjarðará og fl. ám ásamt hópi veiðimanna. Það ætti ekki að koma neinum á óvart lengur að menn leggi á sig millilandaferðir til að veiða i þessari mögnuðu á sem liðast niður allann Eyjafjörðinn enda sjóbirtingsveiðin í henni á pari við það besta sem í boði er hérlendis fyrir aðeins brot af þeim kostnaði sem þekkist annars staðar á landinu.“
Við þetta má bæta að sjóbleikjuveiðin hefur verið góð í sumar og all nokkrar um 70 sentimetrana verið dregnar á þurrt og mældar. Svoleiðis fiskar finnar varla annars staðar á Íslandi.










