Nýtt svæði stymplar sig hraustlega inn

Þessi kappi heitir Guðni og lenti í flottu skoti á neðra svæði austurbakka Hólsár, setti í átta og landaði fjórum.

Það er alltaf gaman að geta sagt frá nýjum svæðum sem geta gefið lax, sérstaklega þegar þau eru oftast frekar ódýr þangað til að þau hafa sannað sig. En þau hafa oft gert það á lága prísnum….við höfum í gegnum tíðina sagt frá svæðum eins og Selfossbakka Olfusár og Gufuá, núna kemur nýtt svæði.

Við erum að tala um neðra svæði Austurbakka Hólsár. Efra svæðið er rótgróið veiðisvæði í einum af hærri gæðaflokkunum en neðra svæðið, þangað til í fyrra, verið spurningarmerki. Lítið reynt, en í gegnum það fer samt allur þessi haugur af laxi sem fer upp í Eystri Rangá. Leigutakinn/söluaðilinn, Kolskeggur, fór að selja í þetta ódýrt í fyrra og heldur því áfram nú. Óhætt er að segja að svæðið hafi fengið aukinn fjölda aðdáenda, enda veiðist þarna vel, a.m.k. meðan að göngurnar standa yfir.
Að undanförnu hafa borist tíðar fréttir af góðum skotum af umræddu svæði. Þó hefur það verið lítið stundað. En leigutakinn Kolskeggur (Jóhann Davíð Snorrason) sagði okkur eftirfarandi: „Það hafa komið góð skot þar. Það voru settar tvær nýjar tjarnir á svæðið og þær virðast vera að skila einhverju auk þess sem kemur í göngum upp í Rangàrnar.“
Hvort að tjarnirnar muni viðhalda veiði á þessu neðra svæði eitthvað fram yfir stóru göngurnar sagði Jóhann: „Við vonum það. Held það sé legufiskur við tjörnina í stað númer 13 en get ekki staðfest það alveg nú. Það lítur út fyrir það en við sjáum til. Alla vegar lofar þetta svæði góðu.“

Á vefsvæði Kolskeggs segir m.a.: -Neðri svæði Austurbakkans er falin perla þar sem oft gefst ævintýrlaleg veiði þegar göngurnar ganga í gegn. Á hverju ári ganga tugir þúsunda laxa í gegn um þetta svæði á leið sinni ofar á vatnasvæðið og að auki er þetta mjög gott sjóbirtingssvæði. Veiðisvæðið er langt eða hátt í 12 kílómetrar og því vel rúmgott um stangirnar fjórar.

Hólsá breytir sér ört niðri á söndunum og myndast þar álar sem laxinn leitar í á göngu. Menn þurfa að vera duglegir að lesa í ána og leita á sumum stöðum. Í Hólsá hefur alltaf gengið sjóbirtingur og hér áður fyrr veiddist líka stöku lax. Eftir að farið var að sleppa seiðum í stórum stíl í Rangárnar og einnig í Hólsána sjálfa hefur laxveiðin stóraukist og í dag er Hólsá á meðal betri veiðisvæða landsins.“