Lax farinn að ganga í Elliðaárnar

Fyrsti laxinn í teljara Elliðaána í gær.

Laxinn er farinn að ganga í Elliðaárnar. Í gær, miðvikudag, var opnað fyrir teljarann í tilefni af því að talning gönguseiða taldist lokið, eða þetta skrifaði Jóhannes Sturlaugsson fiskifræðingur hjá Laxfiskum í gær.

„Fyrsti laxinn sem sögur fara af að skilað hafi sér úr sjó í Elliðaárnar þetta árið fór upp fiskteljarann með tilheyrandi myndatöku kl 17:55 í dag. En opnað var á fiskför um teljarann í hádeginu í dag í kjölfar þess að vöktun á útgöngu gönguseiða laxins lauk þetta árið.

Öll líkindi benda til mikillar laxgengdar þetta sumarið í Elliðaárnar. Þar kemur fyrst við sögu að veðurfarslega þá var sérlega hagstætt vor og sumarbyrjun á Höfuðborgarsvæðinu árið 2025 með hliðsjón jákvæðum áhrifum á sjóþroskun og tilheyrandi útgöngu gönguseiða úr Elliðaánum sem munu skila sér sem smálaxar í Elliðaárnar í sumar.

Ástand sjávar hefur verið gott ef marka má fréttir af því búsvæði svo sem endurspeglast að hluta til í ástandi annarra fiskistofna hér við land svo væntanlega hefur lífsbarátta laxins í sjónum á liðnu ári gengið skikkanlega. Auk þessara jákvæðu forsendna þá vænta má þess að í sumar fáist einnig góð viðbót í hrygningargöngu laxins í Elliðaárnar úr röðum hoplaxa sem gengu til sjávar í vor og skila sér strax til hrygningar að nýju í sumar. Enda var hrygningarstofn Elliðaán haustið 2025 stærri en verið hefur um áratugaskeið eða um 3400 laxar og því líklegt að venju fremur margir hoplaxar hafi lifað vetrarvistina af í Elliðaánum í vetur sem leið og séu því líklegir til að skila sér afturbata úr sjó í sumar.“

Sem sagt von á nóg af laxi, en ætli hann muni taka jafn illa og hann gerði oft í fyrra? Ætli það fari ekki eftir aðstæðum í sumar.