Senn tekur allt enda – tröllin tekin við

Jónas Geirsson með 100 cm úr Bálki í Hrútu.

Við ætlum að bjóða okkur velkomna aftur til baka. Höfum þurft að sinna öðrum verkefnum. En nú er vertíðin senn á enda og löngu ljóst í hvað stefndi. Á heildina litið slakt laxasumar. Skrýtið sumar samt og eitt og annað komið á óvart bæði á góðan veg og verri.

Heimir Óskarsson með mikinnn tudda úr Reyrhólma æi Ytri Rangá.

Við síðustu tölu angling.is stóð Þverá/Kjarrá í 1729 löxum og ber höfuð og herðar yfir „stærri“ sjálfbæru árnar. 2239 komu í fyrra og má því alveg nota hið mikið tekna hugtak: varnarsigur. Samt getum við alveg kastað inn í hringinn bæði Haffjarðará (824) og Hítará 425), þar sem sú fyrri er komin yfir sína tölu frá í fyrra, (802) og Hítará svo til (431). Þessar ár eru inni í miðju því svæði sem verst hefur komið út, allt vestanvert landið frá Húnavatnssýslum og niður í Kjós og Reykjavíkurlækina.

Ragnheiður Thorsteinsson formaður SVFR með 100 cm úr Haukadalsá.

Aðeins fjórar sjálfbærar ár hafa komist yfir þúsund og verða líklega ekki fleiri. Miðfjarðará 1082 (2458), Selá 1071 (1349) og Norðurá 1014 (1703) Selá eiginlega sú eina sem er sjálfri sér lík og gæti endað nærri síðasta árs tölu. Það segir þó sína sögu um allar þessar ár, að laxi er meira og minna sleppt í þeim og endurveiði er talin vera 25-30 prósent. Þetta er því alls ekki góð staða.

Þær hafa margar verið slakar í sumar, en sumar slakari en aðrar. Til að mynda Gljúfurá í Borgarfirði með 76 laxa og Flekkan 54. Úrkomuleysi um hásumarið hjálpaði ekki, en það var bara svo lítið af laxi að þetta hefði ekki orðið mikið betra. Og Blanda og Svartá? Menn héldu að Blanda hefði náð botni í fyrra með 327 laxa, en síðustu tölur frá angling eru 54 laxar og Svartá 60. Þær ná ekki hundrað samanlagt. Að sjálfsögðu hjálpar ekki langt yfirfall til. En staðan er slæm.

Elvar veiddi þennan 102 cm höfðingja í Saneyrarpolli í Laxá í Aðaldal.

Ef að við kíkjum aðeins á „hafbeitarárnar“ sem Hafró hefur nú flokkað frá hinum, þá er Ytri Rangá hæst áa á Íslandi með 4286 laxa (4601 í fyrra) og gæti því náð þeirri tölu og jafnvel gott betur. Það er hægt að vera leiðinlegi karlinn og tala um að oft hafi veiðin verið betri í Ytri, en sannast sagna hefur verið hressileg veiði þar síðan í byrjun ágúst og fregnir herma að enn gangi bjartir laxar. Eystri er á leið yfir sína tölu frá í fyrra (2202) með 2195 skv angling.is þann 9.9. Eystri bakki Hólsár er að sami skapi á fínu róli, kominn með 426 laxa á móti 295 síðasta sumar. Og hafbeitarárnar eiga sína Gljúfurá/Flekku, aðeins 89 komnir úr Affallinu.

Margir vonuðu að margar ár myndi eiga eitthvað inni ef haustrigningar kæmu snemma. Sem þær gerðu. Og glæddu sums staðar veiðina. En ekkert að ráði. Hins vegar skriðu stóru hængarnir úr fylgsnum sínum og tóku grimmt, slíkir komu úr Laxá í Aðaldal, Vatnsdalsá, Haukadalsá, Ytri Rangá, Hrútu og víðar. Einhverjir fundu einhverju sinni upp orðið „krókodílatíminn“ fyrir þessa stórhængaveiði á haustin. Margur veit þó að hrygnurnar geta ekki síður orðið herskáar þegar haustar, ekki síst þær stóru. Og þær eiga það til að sjúga fluguna ofan í tálkn og jafnvel dýpra. Ritstjóri lenti t.d. um árið í tveimur, 13 og 14 punda í Svartá og eiginkonan 12 og 13 punda í Grímsá. Margar sögur eru af slíku. Þetta er háskatími fyrir þær því það er erfitt að sleppa þeim taki þær fluguna af slíkri hörku. Sem þær gera oft..