Fyrsti laxinn er kominn á land 2024, glæsileg 84 cm hrygna sem veiddist í Skugga, sem eru ármót Grímsár og Hvítár í Borgarfirði. Hreggnasi er með svæðið á leigu og kallar laxinn Borgfirðing ársins.
Hreggnasi sagði frá þessu fyrir skemmstu og birti mynd sem að við stelum hér með. Laxinn veiddist í Skuggastreng, sem er ofar á avæðinu heldur en ármótin sjálf. Óhætt að segja að vel fari af stað, en þetta þarf ekki að koma á óvart. Skuggi hefur áður gefið fyrsta laxinn. Hér á árum áður voru setin lögð í Hvítá 20.mai. Og alltaf veiði, stundum lítið, stundum meira, en alltaf líf.










