Urriðinn að éta sig út á gaddinn?

Magnaður urriði veiddur í Villingavatnsárósi í Þingvallavatni nú um helgina. Myndinni rændum við af FB síðu Fish Partner sem er leigutaki svæðisins.

Urriðaveiðin er nú hafin í Þingvallavatni og sögurnar um mikla veiði og stóra fiska eru á hverju strái. En það hangir alltaf gamall draugur við þessar fréttir síðustu árin. Urriðinn sé horaður og kenningar um að stofninn hafi stækkað svo mikið með seiðasleppingum og V&S að hann sé nú búinn að klára ætið sitt.

Svona gerist ekki á einni nóttu, en það eru allavega tvö ár síðan að Zecary, urriahvíslarinn mikli, greindi frá þessu. Hann og fleiri væru að setja í og landa stórum urriðum sem væru vart annað en roð og bein. Núna var það annar urriðahvíslari, Halldór Gunnarsson sem reið á vaðið og birti gamlar myndir á FB frá Þingvöllum þar sem hann sýnir urriða eins og þeir voru í den. VoV henti skilaboðum á Halldór og spurði hann út í hvort að pælingin væri að urriðinn væri enn að veiðast horaður og þá hvers vegna, gamla kenningin var að stofninn hefði stækkað svo mjög að murtan og smærri bleikjan, sem eru aðalfæða risanna væru á þrotum. Það þótti styðja þessa kenningu að bleikju virðist hafa hrakað í vatninu. En bleikju hefur reyndar hrakað víða og þá ekki út af fjölgandi urriðakjöftum. Halldór sendi okkur svar:
„Horaður er hann já mikið til undanfarið. Af hverju veit ég ekki en efa að hann sé búinn að éts allt úr vatninu. Eflaust ehv annað í gangi. En á þessum tíma sá maður ekki horaðan urriða þarna.“
Snævarr Örn Georgsson sem hefur víðtæka þekkingu á urriða og allt sem að honum lítur bætti síðan við: „Jafnvægið var rofið þegar það var enginn urriði í vatninu í hálfa öld. Svo kom urriði aftur og þá var nóg af æti og murta út um allt og þeir urðu mjög stórir mjög hratt. Það tekur tíma að koma á náttúrulegu jafnvægi milli urriða og murtu, en líklega verður þetta eins og rjúpan og fálkinn og stofnarnir munu sveiflast upp og niður. Ekkert í náttúrunni er stöðugt.“