Af drónum, löxum og fuglum

Nú greina Sporðaköst frá því að leigutaki Laxár í Kjós og Hítarár hafi bannað notkun dróna til að hafa upp á fiski. Sem og að leyniskyttur Kalla kóngs hafi polaroidgler yfir riffilsjónaukum sínum þar sem þeir hanga í klettum eða trjám, mögulegum misyndismönnum til hrellingar. En á meðan að allt er með kyrrum kjörum, komi skytturnar auga á laxa fyrir Karl..

Það er ekki nýtt að menn séu að nota dróna til að skyggna hylji, VoV hefur hefur heyrt af slíku athæfi, t.d. við Grímsá, Víðidalsá, Laxá í Dölum og víðar. Séu skilyrði góð, þá geta drónarnir veitt frábæra þjónustu. En þeir eru líka til óþæginga og leiðinda. Fyrir þá sem eru í leit að kyrrð og ró eru þeir óþolandi. Ritstjóra er minnistætt að hafa staðið með nokkrum hópi ferðafólks í fjöru á Höfn í Hornafirði á sérlega fallegu kvöldi og notið dýrðarinnar þar einhverjir Japanir sendu dróna á loft með þeim afleiðingum að fólk tíndist bölvandi í burtu.

En drónarnir trufla marga og í Sporðaköstum er haft eftir kunnugum að þeir trufli mjög fuglalíf, sérstaklega þegar ungar eru í uppvexti. Þetta kemur heima og saman við nokkurra ára gamla sögu sem VoV heyrði fyrir nokkrum árum. Þá sendu spenntir veiðimenn leitardróna á lfot til að finna laxinn í einni af löngum og stórum breiðum árinnar. Varla var dróninn byrjaður að suða heldur en það gall í herlúður á næsta spóaóðali. Svarinu var kallað og drifu af óðir spóar úr öllum áttum. Meira að segja bættust nokkrir kjóar í flugflotann. Sem réðist umsvifalaust á drónann. Eigendum drónans tókst ekki að ná stjórn og fuglaskarinn keyrði hann til jarðar. Flaug svo hver til síns heima, en eftir lá dróninn gersamlega handónýtur. Ekki ósvipaða sögu heyrði VoV frá Færeyjum. Ekki voru það þó veiðimenn að leita að bráð, heldur bara áhugamenn. En þeir reittu alla tjalda á stóru svæði til reiði og sá dróni fékk sömu útreið.

Bara best að sleppa þessu eða hvað? Gæti orðið dýrt spaug.