Vikutölur angling.is eru komnar og er alltaf fróðlegt að renna yfir þær. Nýliðin vika er jafnan ein sú besta á hverri vertíð. Samt sem áður er nokkuð víst að margur hefði viljað sjá hærri tölur. Skilyrði hafa þó sett sitt mark.
Áður en lengra er haldið er þess að geta að á lista angling.is vantar Urriðafoss sem hefur verið í einu af efstu sætunum frá upphafi vertíðar. Vonandi verður fjarvera svæðisins á listanum leiðrétt.

En skilyrði hafa leikið sína rullu. Vikan var óvenjulega köld miðað við árstíma bæði norðanlands og austan. Á hinum enda landsins var lengst af nánast hitabylgja með hríðminnkandi vatni. Og veiðimenn hvattir til að smækka flugur sínar niður úr öllu valdi og nota jafnvel púpur. Hvorug útgáfan af veðurfari glæðir tökugleði laxins.
Nýjustu tölur miðast við 12.júlí. Engin á er komin hálfa leið í þúsundið. Aðeins fjórar (vitum ekki um Urriðafoss) náðu þriggja stafa vikutölur. Óteljandi statusar á FB með brosandi veiðimönnum og konum staðfesta það eitt að jafnvel í slökum sumrum verða til margar minningar og veiðisögur. En hér verður ekki lýst yfir að yfirstandandi vertíð sé slök. Tölurnar einfaldlega segja sína sögu, hvernig sem menn kjósa að túlka þær.
Þar sem við getum ekki staðsett Urriðafoss að sinni þá situr Norðurá í efsta sætinu með 450 laxa. Vikan hennar taldi 102 laxa. Alltaf gott að komast í þriggja stafa tölu, en menn vilja sjá hærri tölur svona fyrri hluta júlímánaðar.
Þverá/Kjarrá er í öðru sætinu með 402 laxa. Vikan hennar gaf 105 laxa. Svipað ástand þar og í næsta dal. Haffjarðará er þriðja í röðinni með 255 laxa. Vikan þar gaf 89 laxa.
Næst í röðinni er Eystri Rangá með 233 laxa og vikan hennar var sú stærsta yfir línuna, 120 laxar komu þá á land. Ytri Rangá er síðan fjórða áin með þriggja stafa vikutölu, hennar vika gaf 106 laxa og samanlagt því 200 laxa slétta.
Í næstu sætum eru Selá og Elliðaárnar með 179 og 176 laxa. Selárvikan gaf 70 laxa en vikan í bæjarlæknum var upp á 77 stykki. Miðfjarðará ver komin í 168 laxa eftir 73 laxa viku og Blanda sat í 155 löxum eftir 36 laxa viku. Hofsá var búin að smyggla sér í topp tíu með 155 laxa samanlagt.
Ár eins og Laxá í Kjós og Langá hafa enn ekki klifrað upp í þessu efstu sæti. En þær gera það eflaust fyrr heldur en síðar því báðar, og fleiri, hafa fengið sterkar göngur. Annars, að vanda, vísum við á vef LV, angling.is þar sem mikinn fróðleik af þessum toga er að finna.










