Nú fara lokatölur úr laxveiðiánum að tínast inn og þær fyrstu eru komnar í hús. Við getum nefnt Haffjarðará, Skjálfandafljót og Norðurá. Fleiri hafa lokað, en endanlegar tölur ekki fyrirliggjandi. Skoðum aðeins þessar nefndu þrjár.
Fyrst Skjálfandafljót, sem flýgur oft undir radarinn vegna þess að áin kemst sjaldnast í allra efstu lögin með veiddan laxafjölda. En veiði er lokið í fljótinu og lokatala (á neðra svæðinu) er 423 laxar. Það er meiri veiði heldur en í fyrra (367) og er áin því í litlum klúbbi sem gaf meira en í fyrra. Það er alltaf jákvætt þegar svo illa hefur veiðst á heildina litið eins og vertíðina 2023. Og, þetta er mesta veiði í ánni síðan 2015 þegar 670 laxar veiddust. Áin hefur sveiflast nokkuð í veiðitölum, en bestu nýlegu sumrin voru 2011, 727 laxar, 2007, 747 laxar og 2004, 932 laxar.
Norðurá rétt marði fjögurra stafa tölu með því að skikkanlega kroppaðist í lokahollunum í september. Lokatalan þar 1087 laxar en í fyrra þótti sumarið slakt með 1352 laxa, 265 löxum meira en nú. Vissulega skemmdi fyrir að áin var afar vatnslítil í gegnum hina að því er virtist óendanlegu þurrka. Áin hefur þó gefið lakari sumarveiði, 2020 var veiðin t.d. 980 laxar, 2019 voru laxarnir 577 talsins, 2014 924 og 2012 953 svo dæmi séu tekin. Áin hefur sveiflast í veiði eins og aðrar laxveiðiár, en farið oftar en einu sinni og eftar en tvisvar yfir 2000 laxa í bestu árum.
Loks Haffjarðará. Lokatalan þar var 905 laxar og hélt áin furðu vel dampi í gegnum þurrkana. Þetta er 35 löxum meira en í fyrra og áin því í litla elítuklúbbum sem státar af betri tölu en í fyrra. Það er þó óvarlegt að bera allt saman og miða allt við 2022, því veiðin þá gat varla talist vera önnur en slakt meðallag. Síðustu árin hefur áin sex sinnum farið í fjögurra stafa tölu, allt frá 1007 og upp í 1146 laxa.










