
Það er sem fyrr allur gangur á vikuveiðitölum, heildartölum, osfrv en almennt má líklega segja að vertíðin er góð í laxveiðinni. Sumar ár betri, aðrar ekki, en engin slök. Skoðum nú aðeins vikutölurnar og sem fyrr er talan í sviganum vikutalan og talan þar á eftir tala frá sama tíma í fyrra.
Þverá/Kjarrá er lang efst og hefur vertíðin þar verið frábær til þessa og langtum betri en á sama tíma í fyrra. Rangárnar eru hins vegar í sóknargír báðar tvær og munu sauma að sjálfbæru ánum á næstu dögum og misserum. En hér eru tölurnar:
Þverá/Kjarrá 1817 (292) 1312
Norðurá 1231 (106) 1095
Ytri Rangá 1114 (366) 1570
Eystri Rangá 1070 (515) 338
Miðfjarðarðá 1058 (299) 1458
Urriðafoss 955 (113) 625
Haffjarðará 948 (226) 670
Langá 843 (235) 873
Blanda 668 (153) 913
Grímsá 576 (137) 594
Elliðaár 566 (108) 577
Laxá í Kjós 551 (148) 413
Selá 492 (193) 390
Laxá í Dölum 425 (196) 209
Laxá í Leir. 373 (107) 237
Laxá í Aðaldal 350 (72) 374
Laxá á Ásum 335 (94) 438
Langholt/Hvítá 299 (63) ekki gefið
Hofsá 280 (102) 180
Svo mörg voru þau orð. Við hefðum getað haldið áfram, það eru fræg og þekkt nöfn utan við þessa tölu, t.d. Vatnsdalsá og Víðidalsá. Þar hefur verið alltí lagi veiði, en einhverra hluta vegna hefur smálaxagengd verið hvað lökust á þeim slóðum. En það er ekki öll von uti enn.









