Barist við náttúruöflin í Kjarrá

Þórður Geir Þorsteinsson með þann fyrsta úr Kjarrá 2023, laxinn fékk hann á Gilsbakkaeyrum og tók hann rauðan Frigga.

Kjarrá opnaði i gær og minna varð úr talsverðum væntingum en vonast var eftir. Og ekki í fyrsta skiptið að skrifa megi útkomuna á íslenskt veðurfar.

Það rigndi sem sagt eldi og brennisteini og áin rauk upp í risaflóð og kakó. Sem og flestar ár á vestanverðu landinu. Engu að síður, og eins og fyrir kraftaverk, þá veiddust eigi að síður tveir laxar. Það er meira afrek heldur en t.d. ef við værum að tala um á eins og Norðurá. Þar eru tálmar sem tefja för laxins og ef vatnavextir eru að setja allt úr skorðum þá er minna vandamál að finna laxinn heldur en t.d. í á eins og Þverá/Kjarrá, sem er fyrirstöðulaus frá sjónarhóli laxins. Og því getur laxinn verið nákvæmlega hvar sem er. Þannig að, vel gert veiðimenn við Kjarrá.Laxarnir veiddust á Gilsbakkaeyrum, sem er klasi af bakkahyljum, og í Runka, sem er langur veiðistaður mun neðar á svæðinu.

Nú er sem betur fer stytt upp og líkindi að þá komi skýrari mynd á stöðuna í Kjarrá. Hún hlýtur að teljast góð miðað við að opnunin í Þverá var býsna lífleg og fiskar að sjást og veiðast víða á svæðinu.