Til stóð að opna Arnarvatnsheiðina þann 15.6 næst komandi eins og venja hefur verið síðustu ár, ef árferði hefur leyft. En ekki verður úr því að þessu sinni. Vinir Heiðarinnar þurfa að bíða, enginn veit hve lengi, því að „einhverjir vitleysingjar“ fóru fram hjá lokunarskiltum og rústuðu veginum. Hann er nú forarsvað og ófær.
Snorri Jóhannesson, sem er umsjónarmaður þar efra var ómyrkur í máli þegar hann lýsti aðkomunni og þeim sem að henni stóðu. Hér er það sem Snorri sagði:
„Í dag fór ég ásamt formanni veiðifélagsins til að kanna aðstæður á heiðinni, Það er skemmst frá því að segja að það er allt ófært norðan Norðlingafljóts. Við fórum frammá brú og niður með fljótinu yfir Refsveinu og aðeins af stað í átt að Úlfsvatni. Mjög fljótlega sáum við að vegurinn var forblautur þannig að við snerum við. Hitt var að við sáum að einhver hálfviti hefur farið yfir vaðið og í átt að Úlfsvatni, og skorið veginn niður á klaka. Sumstaðar voru vilpur þar sem hann eða þeir hafa lent í basli.
Þetta kemur til með að kosta veiðifélagið mikla peninga að laga , þar sem búið er að hræra ofaníburðinn saman við drulluna, þannig að ekki er víst að dugi að hefla. Það var og er bannskilti við Stefánhelli, sem sagt vegurinn er lokaður, lokun gildir fyrir öll ökutæki og má einu gilda hverrar gerðar þau eru, buggybílar og fjórhjól þar með talin. En þetta hefur verið jeppi svo því sé til haga haldið.
Það er sorglegt að menn skuli ekki geta beðið eftir að umferð sé leyfð og veiði hefjist. Nánast allt sem kemur inn fyrir veiðileyfi og gistingu hefur á undanförnum árum farið í að bæta aðgengi og aðbúnað veiðimanna, því er það sárara en tárum taki að eihverjir drullusokkar skuli gefa veiðifélaginu og heiðarlegum veiðimönnum fingurinn með þessum hætti. Ég geri ráð fyrir að þessar skemmdir nái alla leið að Úlfsvatni, en það kemur í ljós síðar. Allir heilbrigðir menn hefðu snúið við, við þær aðstæður sem hafa verið þarna. En það er ljóst að við getum ekki hafið sölu veiðileyfa á venjulegum tíma þann 15 júní en vonum að þetta skáni fljótlega.“










